1. MAÍ 2022

Gjaldskrárbreytingar

Í kjölfar reglulegrar endurskoðunar á verðskrá vegna vinnu- og þjónustusamninga mun Origo hækka einstaka þjónustuþætti. Þær þjónustuvörur sem taka breytingum munu hækka á bilinu 1% til 7% og tekur sú hækkun gildi frá og með 1. júní.

Gjaldskrá fyrir vinnu við rekstrar- og sérfræðiþjónustu mun hækka hjá einstaka sérfræðingum á bilinu 2,5% til 4,8% frá og með 20. maí 2022. Þessi breyting nær ekki til samninga sem eru vísitölutengdir.

Með hagræðingu hefur okkur tekist að stilla breytingum í hóf og er kostnaðarauki Origo meiri en sem nemur þessari breytingu.