11. JANÚAR 2021

Tilnefningarnefnd fyrir stjórn Origo að störfum

Tilnefningarnefnd Origo hf. hefur ráðgefandi hlutverk við val á stjórnarmönnum og leggur tillögur sínar fyrir hluthafafund þar sem stjórnarkjör er á dagskrá.

Nefndin metur frambjóðendur til stjórnar og tilnefnir með áherslu á að viðeigandi og fjölbreytt hæfni, reynsla og þekking sé fyrir hendi hjá stjórnarmönnum og stjórn.

Nefndin er nú að störfum og undirbýr tillögur sínar fyrir næsta aðalfund félagsins, dags. 4. mars nk.

Þeir sem hafa í hyggju að bjóða sig fram til stjórnar er bent á að senda ferilskrá og kynningarbréf á tilnefningarnefnd@origo.is fyrir kl. 12:00 þann 20. janúar nk. Að þeim tíma liðnum mun nefndin skila tillögum sínum um samsetningu stjórnar fyrir aðalfund félagsins.