10. MAÍ 2025
Tilkynning vegna bilunar á vélbúnaði
Vélbúnaðarbilun kom upp síðdegis í gær í afmörkuðum hluta diskastæðu í gagnaveri á Reykjanesi.
Bilunin olli því miður rekstrartruflunum hjá hluta viðskiptavina Origo.
Viðbragðsteymi Origo brást hratt við ásamt innlendum og erlendum sérfræðingum. Undirliggjandi orsök bilunar var lagfærð innan við tveimur klukkustundum frá því hennar varð fyrst vart. Flest kerfi fóru í kjölfarið aftur í fullan rekstur og sérþjálfað teymi hefur síðan unnið stöðugt að lagfæringum á afleiðingum bilunarinnar.
Einhverra afleiðinga gætir enn sem unnið er í með viðskiptavinum í hæsta forgangi.
Rétt er að taka fram að ekki er um að ræða netöryggisatvik eins og netárás eða gagnagíslatöku.
Síðast uppfært kl 11:00, 10.05.25.