11/12/2021

Origo bregst við alvarlegum öryggisveikleika á heimsvísu

Í ljósi frétta á öllum helstu miðlum í dag um yfirvofandi ógn á heimsvísu vegna veikleika í tölvukerfum sem uppgötvaðist á fimmtudaginn vill Origo koma eftirfarandi á framfæri.

Höfuðstöðvar Origo að Borgartúni 37 í Reykjavík

Unnið hefur verið að greiningu á veikleikanum í umhverfi Origo og er unnið hörðum höndum að því að lágmarka möguleg áhrif og koma í veg fyrir mögulegt tjón eins og frekast er unnt í tölvukerfum sem hýst eru og rekin af Origo.

Teymi sérfræðinga sinnir vinnunni í hæsta forgangi og mun gera það þar til að ógnin er yfirstaðin.

Origo hefur einnig virkjað frekari öryggisvarnir til að takmarka aðgengi að þeim kerfum sem veikleikinn nær til. Mögulegt er að einhverjir viðskiptavinir verði varir við breytta virkni á meðan á þessari vinnu stendur. Ef viðskiptavinir verða varir við breytta virkni þá er það vegna þess að verið er að koma í veg fyrir áhættu sem annars gæti verið til staðar.

Origo mun upplýsa um stöðu eftir því sem tilefni er til og frekari upplýsingar munu birtast eftir því sem vinnu tæknimanna vindur fram.

Hægt er að fylgjast með uppfærðum tilkynningum hér.

Deila frétt