18/05/2021

Örprófíll: Örlygur Smári, Eurovision smellasmiður

Örlygur Smári

Draumur fyrir mann sem komst aldrei í landslið í íþróttum

 Örlygur Smári sér um daglegan rekstur á netverslun Origo en hann hefur starfað hjá fyrirtækinu í rétt tæp tíu ár. Örlygur Smári er einnig lagahöfundur, útsetjari (e. producer) og upptökumaður og eins og margir vita hefur hann samið fjögur framlög Íslands í Eurovision keppninna.

,,Ég er í þróunarteyminu og sé um daglegan rekstur netverslunar Origo. Það er búið að vera mikill uppgangur í netverslun undafarin ár og þá sérstaklega á síðasta ári . Ég hef sinnt þessu starfi síðustu fimm ár en ég hef starfað hjá Origo í alls rétt tæp tíu ár. Þetta er búinn að vera mjög skemmtilegur tími og það er skemmtilegt og spennandi að vinna í netversluninni. Hún er mjög vaxandi. Maður þarf auðvitað að vera mikið á tánum, bæði gagnvart samkeppninni og þeim möguleikum sem eru í boði í þessum geira,” segir hann.

 Meðfram starfinu í Origo er Örlygur Smári á kafi í tónlist

"Ég starfaði eingöngu við að vera lagahöfundur, útsetjari og upptökumaður í mörg ár. Nú starfa ég við tónlistina í aukavinnu og það gengur vel upp.

Ég er með studio vestur í bæ þar sem ég er að vinna tónlist.”

Eins og áður segir hefur Örlygur Smári samið fjögur framlög Íslands eða fleiri en nokkur annar lagahöfundur. Það lá því beint við að spyrja hann út í Eurovision sem hefst einmitt í vikunni.

,,Ég samdi lagið Tell me árið 2000 fyrir þau Einar Ágúst og Thelmu. Árið 2008 samdi ég lagið This Is My Life fyrir Eurobandið sem Friðrik Ómar og Regína Ósk fluttu með stæl. Ég samdi síðan Je Ne Sais Quoi sem Hera Björk söng árið 2010 og loks samdi ég lagið Ég á líf með Eyþóri Inga sem keppti 2013. Þetta var gríðarlega skemmtilegt í öll skiptin og það má segja að þetta hafi verið draumur fyrir mann sem komst aldrei í landslið í íþróttum,” segir hann og hlær.

,,Þetta er auðvitað mikill heiður og hreinlega ævintýralegt að vera í úrslitakeppninni. Það er mikið stuð í kringum Eurovision úti og það er alls konar fólk sem fylgir keppninni. Þetta er mikil skemmtun í alla staði.”

Örlygur Smári í stúdíói sínu í vesturbæ ReykjavíkurÖrlygur Smári í stúdíói sínu í vesturbæ Reykjavíkur

Reiknar með hinu ótútreiknanlega

,,Fyrsta ferðin mín árið 2000 var sérlega eftirminnileg en þá var keppt í Stokkhólmi. Þá komu dönsku Olsen bræðurnir og sigruðu nokkuð óvænt. Það er það skemmtilega við keppnina að það óútreiknanalega gerist oft. Keppnin breyttist gríðarlega á þeim 13 árum frá því ég keppti fyrst þar til ég fór síðast. Árið 2000 voru t.a.m. 24 þjóðir sem tóku þátt en eru í dag um 40. Það er líka miklu meiri öryggisgæsla og miklu meira lagt í þetta nú en áður. Í dag er þetta enn stærra.”

Aðspurður um uppáhaldslagið af þeim fjórum sem hann samdi svarar hann:

,,Það er erfitt að gera upp á milli laganna minna, mér þykir vænt um þau öll en á ólíkan hátt. Ég lærði það fljótt í fyrstu keppninni að þetta er svolítið keppni í mörgu meiru en að semja gott lag. Við Íslendingar stefnum alltaf langt í keppninni eins og íþróttum. Mér finnst þó alltaf sigur fyrir Ísland að komast í úrslitin. Það þarf svo margt að falla með okkur til að vinna keppnina. Atriðið, flutningurinn og svo margt annað sem þarf að „kikka inn“ til að ná til allra þessara ólíku þjóða."

 Hvernig líst þér á Eurovision keppnina í ár?

,,Mér líst ljómandi vel á þetta. Ég held að Daði geti endað mjög ofarlega í keppninni en ég yrði svo aftur á móti ekkert hissa ef hið gagnstæða myndi gerast því Eurovision er svo mikið ólíkindatól. Daði getur þó farið sáttur frá borði hvernig sem þetta endar hjá honum og Gagnamagninu. Hann er búinn að gera mjög flotta hluti bæði núna og með lagið í fyrra sem því miður fór ekki í lokakeppnina þar sem henni var aflýst vegna Covid-19.,” segir Örlygur Smári og ætlar að fylgjast vel með undankeppnunum og úrslitakeppninni á laugardagskvöldið.

0:00

0:00

Deila frétt