28/01/2021

Tæplega helmingur meira á vinnustaðnum enn heima

Tæplega helmingur hyggst vinna meira á vinnustaðnum en heima þegar COVID-19 faraldrinum lýkur. Könnunin var lögð fyrir gesti vefvarps Origo um Framtíð vinnu eftir COVID-19 með Graeme Codrington, sérfræðingi í vinnustöðum framtíðarinnar, sem fór í fram í morgun.

Á viðburðinum ræddi Codrington um fimm breytingar sem munu einkenna vinnu og atvinnulíf næsta áratuginn. Hann beindi sjónum sínum einkum að tækniþróun, breytingum á skipulagsheildum, lýðfræðilegum breytum, umhverfi og tilfærslu á félagslegum gildum.

Á viðburðinum voru gestir jafnframt spurðir hvar þeir sæu fyrir sér að sinna vinnu sinni í framtíðinni.

  • 20% ætla að vera meira heima en á vinnustaðnum.

  • 29% ætla að skipta vinnutímanum nokkurn vegin jafnt á milli heimilis og vinnustaðar

  • 49% hyggjast vera meira á vinnustaðnum en eitthvað heima

  • 1% algjörlega í vinnunni.

Ríflega 800 manns skráðu sig á viðburðinn, sem var á vegum Kjarna, mannauðs- og launakerfis, sem Origo hefur þróað.

Deila frétt