Verður 2021 ár tölvuárása?
Vefvarp með Charlie McMurdie sem er einn helsti sérfræðingur heims í netöryggi og aðgerðum gegn tölvuárásum. Hún starfaði í 32 ár í lögreglunni í Bretlandi þar sem hún stofnaði og stýrði tölvudeild sem tókst á við tölvuglæpi og netárásir.

Tölvuþrjótum eykst sífellt ásmegin enda er eftir miklu að slægjast fyrir óprúttna aðila, sem herja bæði á fyrirtæki, stofnanir og ríki. Talið er að tölvuþrjótar velti nærri 2 trilljónum Bandaríkjadala ár hvert og sú upphæð fer vaxandi, ef marka má techrepublic.com.
Aukin stafræn notkun fyrirtækja og einstaklinga kallar á nýja nálgun í öryggislausnum. Til þess að ræða þróunina og hvers megi vænta höfum fengið til liðs við okkur Charlie McMurdie, einn helsta sérfræðing heims í netöryggi og aðgerðum gegn tölvuárásum.
Hún starfaði í 32 ár í lögreglunni í Bretlandi þar sem hún stofnaði og stýrði tölvudeild sem tókst á við tölvuglæpi og netárásir.
Starfaði í netöryggissveit fyrir ÓL 2012
Hún starfaði einnig í netöryggissveitinni fyrir Ólympíuleikana í London 2012 og var síðast yfirráðgjafi tölvubrota hjá PwC.
Charlie McMurdie er leiðandi sérfræðingur á heimsvísu í upprætingu í tölvuárása. Hún mun án efa opna hug áhorfenda fyrir óþekktum heimi og hættum.
Í vefvarpinu mun Charlie ræða sína reynslu af stórum verkefnum, svo sem frá Ólympíuleikunum í Lundúnum, aukna getu tölvuþrjóta til þess að herja á fyrirtæki og einstaklinga og hvernig við getum brugðist við þessari vaxandi óárán.
segðu frá
Verður 2021 ár tölvuárása?

Charlie McMurdie
Fyrrum yfirráðgjafi tölvubrota hjá PwC.
Charlie er leiðandi sérfræðingur á heimsvísu í tölvuárásum og upprætingu þeirra.