20/03/2026

Úrvalsstæði KEF - einfaldara ferli og betri upplifun

Með Miðjunni, sjálfsafgreiðslulausn frá Origo, hefur ferlið í kringum úrvalsstæðaþjónustu Keflavíkurflugvallar verið einfaldað til muna. Miðjan veitir betri yfirsýn, aukið öryggi og gerir viðskiptavinum kleift að njóta einfalds ferlis.

VIÐSKIPTAVINUR

OKKAR AÐKOMA

Miðjan, hugbúnaður

Einkabíllinn er besti vinur Íslendinga. Þegar við leggjum leið okkar til útlanda er einkabíllinn vinsælasti kosturinn. Það getur verið áskorun að leggja bílnum á flugvellinum þar sem tímafrekt er að finna laust stæði og muna síðan í kjölfarið hvar bílnum var lagt þegar heim er komið. Bílastæðaþjónusta KEF hefur leyst þetta vandamál með Úrvalsstæðunum sínum. Sú þjónusta hentar þeim sem vilja leggja nálægt flugstöðinni og vilja nálgast hlýjan bíl fljótt og örugglega eftir að komið er heim. Origo og Keflavíkurflugvöllur hafa tekið höndum saman og komið upp sjálfsafgreiðslulausn þar sem viðskiptavinir afhenda og sækja lykla í snjallbox og þurfa því ekki að bíða í biðröð eftir því að fá lyklana sína afhenta.  

Ferlið einfaldað

Áður en snjallboxin voru tekin í notkun voru skil og afhending lykla með öðrum hætti. Viðskiptavinir lögðu bílnum sínum á sérmerkt stæði fyrir framan flugstöðina, fóru að þjónustuborði, auðkenndu sig og afhentu lykla. Hið sama var uppi á teningnum við heimkomu. Þetta var tímafrekt ferli, bæði fyrir farþega og starfsfólk og hætta á álagi og bið á ákveðnum tímum, t.d. á morgnana og síðdegis þegar flest flug eru. Því var leitað leiða til að halda áfram að bjóða upp á þessa þjónustu með skilvirkari hætti sem krafðist ekki mannskaps allan sólarhringinn. 

Helsta áskorunin við gamla ferlið var að það þurfti mannskap á þjónustuborðið allan sólarhringinn. Keflavíkurflugvöllur var með margvíslega aðra þjónustu sem fór fram í gegnum þjónustuborðið, en eftir útfösun annarra þjónustuþátta var úrvalsstæði eina þjónustan sem fór þar fram.

Einar Gunnarsson

Verkefnastjóri bílastæðaþjónustu

Sjálfsafgreiðsla sem styður við rekstur flugvallarins

Til að mæta þessum áskorunum var tekin ákvörðun um að færa ferlið yfir í sjálfsafgreiðslu og sjálfvirkni, með það að markmiði að halda þjónustustiginu óbreyttu – eða betra – án þess að þurfa stöðuga mönnun.  

Með nýju fyrirkomulagi fer afhending og skil á bíllyklum nú fram með stafrænum hætti. Hugbúnaður Origo, Miðjan, sækir bókanir í bílastæðakerfi Isavia, og sendir sjálfkrafa upplýsingar til viðskiptavina án þess að starfsfólk Bílastæðaþjónustu KEF komi þar nærri. Lausnin gerir því KEF kleift að hafa fulla yfirsýn, tryggja öryggi og bjóða viðskiptavinum sínum einfalt og þægilegt ferli, frá bókun til heimkomu.  

Helstu ávinningar fyrir viðskiptavini og Keflavíkurflugvöll:

  • Skilvirkara ferli: Engar biðraðir og engin þörf á þjónustuborði allan sólarhringinn.  

  • Bætt upplifun farþega: Skýr skilaboð, fyrirsjáanleiki og notkun auðveld.

  • Rekstrarhagkvæmni: Minni handavinna og betri nýting á mannauði.  

  • Öryggi og aðgangsstýring: Aðeins réttir aðilar hafa aðgang að réttum bílastæðum.  

  • Sveigjanleiki til framtíðar: Lausnin styður áframhaldandi þróun bílastæðaþjónustu flugvallarins.  

Snjallboxin á KeflavíkurflugvelliSnjallboxin á Keflavíkurflugvelli

Svona virkar þjónustan í dag

Viðskiptavinir bóka Úrvalsstæði líkt og áður í gegnum vef Keflavíkurflugvallar. Stuttu fyrir brottför fá þeir tölvupóst með skýrum leiðbeiningum um afhendingu bíllykla. Viðskiptavinir leggja bíl í sérmerkt stæði við inngang í brottfararsal. Við komu í brottfararsal skila þeir lyklunum í snjallbox.   

Starfsfólk bílastæðaþjónustu KEF sér síðan um að færa bílinn á öruggt stæði. Við heimkomu er bílnum síðan komið fyrir á sérmerktu stæði uppi við flugstöðina, þar sem búið er að skafa og gera allt tilbúið. Starfsfólk setur lykla í snjallbox í komusal og um leið fær viðskiptavinur skilaboð um hvar og hvernig hann sækir bíllyklana ásamt upplýsingum um hvar bíl er lagt.  

Allt ferlið er hannað með það að leiðarljósi að vera einfalt, öruggt og án óþarfa biðar. Viðbrögð viðskiptavina hafa ekki staðið á sér. Gríðarleg ánægja er með þjónustuna þar sem einfaldleikinn er hafður í fyrirrúmi.  

Það kom mér á óvart hvað ferlið varð fljótt eðlilegur hluti af daglegum rekstri. Þetta reyndist skilvirkara en ég hafði gert ráð fyrir

Einar Gunnarsson

Verkefnastjóri bílastæðaþjónustu KEF

Miðjan og snjallbox frá Ofar lykilinn að velgengni

Samspil Miðjunnar frá Origo og snjallboxa frá Ofar gera fyrirtækjum mögulegt að staf- og sjálfvirknivæða ferla með tilheyrandi ávinningi fyrir bæði starfsmenn fyrirtækja og viðskiptavini.  Miðjan býður upp á heildstæða lausn fyrir afhendingu og skil á vörum í gegnum snjallbox eða beint frá afgreiðslustað. Miðjan er hönnuð til að stafvæða upplýsingagjöf og ferla fyrir starfsfólk og viðskiptavini. 

Helstu ávinningar Miðjunnar eru:

  • Notendavæn veflausn: Aðgengileg úr hvaða vafra sem er auðveld í notkun, jafnvel fyrir þá sem hafa litla tölvukunnáttu.

  • Mikil innbyggð virkni: Virkni fyrir afhendingarferli og skilaferli, og svo rafræna auðkenningu eða greiðslu fyrir afhendingu.

  • Samþætting: Tengist við snjallbox og einfalt að samþætta við kerfi sem eru nú þegar í notkun.

  • Aðgangsstýring: Notar öfluga aðgangsstýringu til að tryggja að aðeins réttir aðilar hafi aðgang.

Lausnin hentar öllum fyrirtækjum sem vilja einfalda afhendingu og móttöku á hverju því sem starfsmaður þyrfti annars að afhenda eða taka við. Hún gerir þér kleift að halda utan um allt ferlið á einum stað og veita viðskiptavinum þínum framúrskarandi þjónustu. Kerfið er í stöðugri þróun og nýir eiginleikar bætast reglulega við til að mæta þörfum notenda.

Notkun bílastæðaþjónustu KEF er enn eitt dæmi um það hvernig Miðjan og snjallbox eru notuð til þess að umbreyta þjónustu og ná fram miklum ávinningi.  Hér má t.d. lesa um afhendingu aðgangskorta á KEF, sem byggir á sömu lausn, þótt ferlar séu aðrir.   

Ráðgjöf

Viltu vita meira um Miðjuna?