30/10/2026
Bifröst er gervigreindarheili fyrir Business Central, ekki bara MCP

Gervigreind sem svarar ekki bara spurningum heldur framkvæmir líka verkin
Flest fyrirtæki eru farin að prófa gervigreind í daglegum rekstri. Starfsfólk spyr um stöðu mála, leitar upplýsinga og fær á nokkrum sekúndum svör sem áður tóku mun lengri tíma að finna. En þegar svarið liggur fyrir tekur oft við sama gamla vinnan: að skrá sig inn í viðskiptakerfið, staðfesta upplýsingar og framkvæma verkefnið handvirkt. Sjálfvirknivæðing þessara verkefna byggir á kostnaðarsamri umbótavinnu sem situr á hakanum.
Bifröst var þróuð til að brúa þetta bil. Hún tengir gervigreind við Business Central á þann hátt að notendur geta ekki aðeins fengið upplýsingar úr kerfinu heldur einnig framkvæmt aðgerðir og sjálfvirknivætt ferla á öruggan og stjórnaðan hátt. Þú spyrð á mannamáli í Copilot, ChatGPT eða Claude og færð ekki bara svar heldur getur látið kerfið vinna verkið fyrir þig.
Bifröst tengir gervigreind ekki bara við Business Central. Hún kennir henni að skilja það.
Margar gervigreindarlausnir geta tengst kerfum, sótt gögn og framkvæmt afmarkaðar aðgerðir en aðgangur að kerfi er ekki það sama og skilningur á því hvernig fyrirtæki starfar.
Bifröst er þekkingarlag sem breytir almennri gervigreind í sérfræðing í Business Central og rekstri fyrirtækja. Hún kennir gervigreindinni hvernig rekstur og fjárhagsbókhald fyrirtækja og stofnanna virka í raun og veru. Þannig fær gervigreindin ekki aðeins aðgang að upplýsingum heldur skilning á samhengi þeirra.
Þegar starfsmaður spyr um stöðu viðskiptavinar, ógreidda reikninga eða áhrif ákveðinnar bókunar sér Bifröst um að miðla þeirri þekkingu sem þarf til að túlka upplýsingarnar rétt. Gervigreindin skilur ekki bara hvað gögnin segja heldur einnig hvað þau þýða fyrir rekstur fyrirtækisins.
Það er grundvallarmunurinn á Bifröst og hefðbundnum MCP tengingum eða almennum gervigreindarlausnum. Bifröst tengir gervigreind ekki bara við Business Central. Hún kennir gervigreindinni að skilja og vinna í Business Central.
Hvað getur Bifröst gert?
Með Bifröst geta notendur:
Spurt spurninga og fengið svör úr lifandi gögnum í Business Central
Framkvæmt aðgerðir eins og að stofna pantanir, vinna með greiðslur, framkvæma afstemmingar og undirbúa bókanir
Búið til mælaborð og greiningar með einföldum fyrirspurnum
Sett upp gervigreindar erindreka (AI agents) sem sinna endurteknum verkefnum
Tengt saman Business Central og önnur viðskiptakerfi á mun hraðari og ódyrari máta
Nýtt eigin ferla fyrirtækisins sem hluta af gervigreindarlausninni
Í stað þess að vera aðeins spjall við gögn verður gervigreindin virkur þátttakandi í rekstrinum. Þannig er hægt að spara fjármuni í séraðlaganir og auka skilvirkni til muna.
Af hverju er Bifröst öðruvísi en MCP þjónn?
MCP þjónn er í grunninn tenging sem opnar aðgang fyrir gervigreind að gögnum og virkni kerfa. Bifröst er hins vegar sérhæfð þekkingarlausn sem situr á milli gervigreindarinnar og fjárhagskerfisins. Hún veit hvernig Business Central virkar, skilur fjárhagsbókhald, rekstrarferla og viðskiptareglur fyrirtækja og getur miðlað þeirri þekkingu áfram til gervigreindarinnar.
Það sem gerir Bifröst einstaka er ekki að hún tengi gervigreind við Business Central. Það sem gerir hana einstaka er að hún flytur áratuga þekkingu á fjárhagsferlum, rekstri og Business Central yfir til gervigreindarinnar. Þannig breytist almenn gervigreind úr því að vera spjallmenni sem finnur upplýsingar yfir í stafrænan sérfræðing sem skilur reksturinn og getur tekið virkan þátt í honum.

Ertu klár í að láta gervigreind vinna verkin?
Fyrirtæki sem hefja vegferð sína með gervigreind standa frammi fyrir mikilvægu vali. Á hún eingöngu að svara spurningum og sækja upplýsingar eða á hún að hjálpa starfsfólki að ljúka verkefnum hraðar, öruggara og með minni fyrirhöfn? Með Bifröst geturðu tengt gervigreind við Business Central á öruggan og stjórnaðan hátt þannig að hún styðji ekki aðeins starfsfólkið heldur framkvæmi einnig verkefni sem áður kröfðust handvirkrar vinnu.
Hvort sem markmiðið er að einfalda ferla, auka afköst, lækka upplýsingatæknikostnað eða undirbúa fyrirtækið fyrir næstu kynslóð gervigreindarlausna getum við sýnt þér hvernig Bifröst passar inn í þinn rekstur. Hafðu samband við sérfræðinga Origo og bókaðu kynningu á Bifröst. Þá sérðu hvernig gervigreind getur farið úr því að vera aðstoðarmaður yfir í að vera virkur þátttakandi í daglegum verkefnum fyrirtækisins.
Hafa samband
Sjáðu hvernig Bifröst virkar á þínum eigin gögnum
Ræddu við sérfræðinga okkar í Business Central og gervigreind til að prófa