10/03/2026

Gerðu Copilot að raunverulegu verkfæri í fyrirtækinu á fjórum vikum

Mörg fyrirtæki hafa þegar fjárfest í Microsoft Copilot en í mörgum tilvikum er nýtingin enn lítil og virðið af fjárfestingunni takmarkað. Ástæðan er einföld: Copilot virkar aðeins eins vel og gögnin, innviðirnir og vinnulagið styður kerfið.

Origo og DataLab hafa því sameinað krafta sína og bjóða fjögurra vikna innleiðingarsprett sem hjálpar fyrirtækjum að fara frá hugmynd yfir í raunverulega notkun Copilot, á öruggan og markvissan hátt.

Hvað stendur í vegi fyrir árangri með Copilot?

Copilot er orðið aðgengilegt flestum sem nota Microsoft 365 en samt upplifa mörg fyrirtæki að:

  • Starfsmenn nýta tólið lítið í daglegum verkefnum

  • Niðurstöður eru ekki eins gagnlegar og vonast var til

  • Óvissa er um öryggi gagna og aðgangsstýringar

Án undirbúnings skilar Copilot annað hvort litlu virði eða skapar nýjar áhættur. Til að ná raunverulegum árangri þarf að vinna samhliða með tækifærin í gervigreind og tæknilegan grunn sem styður hana.

Samstarf sem sameinar gervigreind og sterka innviði

Samstarf DataLab og Origo sameinar þekkingu á gervigreindarlausnum og öruggum innviðum.

  • DataLab: sérfræðingar í hagnýtingu gervigreindar og þróun gervigreindalausna.

  • Origo: lykilþekking á Microsoft umhverfi, gagnaöryggi og innleiðingu stafrænna lausna

Þessi samsetning tryggir að fyrirtæki fái bæði réttu hugmyndirnar og réttan grunn til að framkvæma þær.

Fjórar vikur sem koma Copilot í raunverulega notkun

Spretturinn er hannaður til að skila raunverulegum niðurstöðum á stuttum tíma.

Vika 1 – Kortlagning
Við greinum tækifæri til að nýta Copilot í starfseminni og metum stöðuna á gögnum og innviðum.

Vika 2 – Forgangsröðun
Við veljum verkefni sem geta skilað mestum ávinningi og skilgreinum pilot sem hægt er að innleiða fljótt.

Vikur 3–4 – Þróun og innleiðing
Við setjum af stað pilot lausnir og tryggjum að öryggi, aðgangsstýring og gagnaumhverfi styðji notkun Copilot.

Lausnir sem skila virði strax

Pilot verkefnin eru valin með það að markmiði að skapa mælanlegan ávinning fyrir starfsfólk. Dæmi um slíkt eru:

  • Sjálfvirkar samantektir af fundum

  • Gagnagreining í Excel með náttúrulegu máli

  • Drög að tölvupóstum og skjölum

  • Spjallmenni fyrir innri handbækur eða þjónustuferla

  • Einföld sjálfvirkni í ferlum fyrirtækisins

Markmiðið er að starfsfólk sjái strax hvernig Copilot getur einfaldað dagleg verkefni og aukið framleiðni.

Sterkari grunnur fyrir gervigreind í fyrirtækinu

Auk pilot verkefna hjálpar greiningarspretturinn fyrirtækjum að:

  • Fá skýra sýn á tækifæri Copilot

  • Styrkja gagna- og öryggisinnviði

  • Móta aðgerðaáætlun fyrir frekari notkun gervigreindar

Þannig verður spretturinn fyrsta skrefið í stærri gervigreindarvegferð fyrirtækisins.

Fyrsta skrefið í vegferðinni

Fyrirtæki geta valið mismunandi umfang verkefnis eftir þörfum, en í öllum tilfellum er markmiðið það sama: að umbreyta Copilot úr áhugaverðri hugmynd í raunverulegt verkfæri sem bætir framleiðni.

Hafðu samband við sérfræðinga Origo til að ræða hvernig hægt er að hefja Copilot vegferðina á þínum vinnustað og fá raunverulegt virði úr Copilot fjárfestingunni.

Fá ráðgjöf