Vertu klár í Copilot

Gervigreindarteymi Origo býður upp á fjögurra vikna sprett sem kortleggur tækifærin í ykkar rekstri, yfirfer öryggið og kemur vinnustaðnum af stað í notkun Copilot í daglegum störfum.

Myndskreyting

Tvær algengar stöður

Hvar stendur þinn vinnustaður gagnvart Copilot?

Ekki byrjað

Vinnustaðurinn vill nota Copilot en veit ekki hvar á að byrja og hvað megi gera. Mikil pressa er hins vegar á að hleypa fólki af stað.

Byrjað en lítið að gerast

Nú þegar er verið að borga fyrir Copilot leyfi en notkunin er lítil í daglegum störfum og takmarkað virði fæst af fjárfestingunni.

Teymið

Alvöru samstarfsaðili í gervigreind

Tvö af reyndustu gagna- og gervigreindarteymum landsins, DataLab og Maven, eru nú sameinuð í eitt svið hjá Origo. Teymið sinnir gagna- og gervigreindarmálum frá stefnu og kortlagningu yfir í gagnainnviði, gervigreindarlausnir og örugga hýsingu á Íslandi.

DataLab hefur unnið að hagnýtingu gervigreindar frá 2016 fyrir ýmis fyrirtæki og stofnanir. Nú býðst ráðgjöf þeirra í beinu samstarfi við innviða- og öryggissérfræðinga Origo. Útkoman er teymi sem bæði veit hvað á að gera og hvernig á að gera það rétt.

myndskreyting

Hvað þarf til

Vel heppnuð innleiðing krefst fjölþættrar nálgunar

Tækifærið

M365 Copilot er aðeins ein hlið á gervigreind í rekstri

Að kaupa leyfi eitt og sér breytir engu. Virðið verður til þegar tækifærin eru kortlögð, gögnin eru í lagi og fólkið kann að nota tólin í sínum eigin verkefnum eftir markvissri stefnu.

Við horfum því á alla myndina: M365 Copilot í daglegum störfum en Copilot Studio fyrir spjallmenni og sjálfvirknivæðingu þegar það borgar sig að fara lengra.

myndskreyting

Hvernig þetta virkar

Fjórar vikur, þrjú skref

Vika 1 - Hugvekja og kortlagning

Aðgangsstýringar, merkingar gagna og yfirferð viðkvæmra upplýsinga áður en Copilot fær aðgang að gögnunum.

Vika 2 - Forgangsröðun

Tækifærin metin og raðað eftir skýrum forsendum, og aðgerðaáætlun sett upp í samvinnu. Herðingar á öryggisþáttum út frá stöðumati.

Vika 3&4 - Þróun og innleiðing

Copilot komið í notkun á vinnustaðnum með innleiðingu og námskeiði. Möguleiki á að þróa sérstök pilot verkefni. 

Afurðir

Hvað labbið þið út með eftir fjórar vikur

  • Kortlagning tækifæra í ykkar rekstri
  • Notkunarkönnun meðal starfsfólks
  • Forgangsröðuð aðgerðaáætlun
  • Stöðumat á innviðum og gögnum
  • Námskeið og vinnustofa fyrir teymið
  • Herðing á öryggi og aðgangsstýringum
  • Tvö pilot verkefni

Reynslusögur

Reynsla af öðrum ráðgjafarverkefnum

Bláa lónið

"Svona vinna laðar ekki bara fram nýjar hugmyndir heldur staðfestir þekktar áskoranir sem mikilvægt er að bregðast við."

Orka náttúrunnar

"Þetta var mjög vönduð og mikil vinna sem við lögðum í. Starfsfólk okkar hafði mikinn áhuga að taka þátt í þessu, var mjög virkt og kom með margar hugmyndir."

Nýleg ráðgjafarverkefni

Teymið hefur unnið með fyrirtækjum og stofnunum um allt land

Fá ráðgjöf

Hvernig getur Copilot nýst þínum vinnustað?

Tengt efni