04/09/2023

Hvaða Canon myndavélar eru bestar að mati EISA?

Canon EOS R6 Mark II og Canon EOS R8 hlutu vinningin í ár í flokki ljósmyndabúnaðar hjá EISA.

EISA, félag sérfræðinga í mynd og hljóði (The Expert Imaging and Sound Association) hefur tilkynnt vörur sem hljóta vinninginn 2023-2024 í flokki ljósmyndabúnaðar. Canon EOS R6 Mark II var valin besta full-frame myndavélin og Canon EOS R8 var valin bestu kaupin. Canon RF 135MM F1.8L IS USM var einnig valin besta aðdráttarlinsan en hún hentar vel fyrir portrett, brúðkaup og jafnvel íþróttir ásamt að vera frábær fyrir vídeó.

EISA: Awards

EISA er samfélag 58 tæknitímarita, vefsíðna og fréttaskýrenda á samfélagsmiðlum frá 29 löndum, sem sérhæfa sig í háljóði Hi-Fi, heimabíóum, ljósmynda-og vídeóbúnaði og rafeindatækni í bílum og farsímum. Á hverju ári veitir dómnefnd EISA eftirsótt EISA-verðlaun fyrir bestu vörurnar í hverjum flokki fyrir sig, en dómnefndin er skipuð sérfærðingum á þeim sviðum.

Canon EOS R6 Mark II: FULL-FRAME CAMERA 2023-2024

Samkvæmt EISA hefur Canon, með EOS R6 Mark II, hannað einstaklega öflugan arftaka fyrir EOS R6. Upplausnin var aukin úr 20 upp í 24.2 milljón pixla með nýrri CMOS myndflögu sem styður Dual Pixel CMOS AF II sjálfvirka fókuskerfið. Myndavélin tekur ótrúlega marga ramma á sekúndu eða 40 ramma ásamt því að búa yfir háklassa sjálfvirku fókuskerfi sem eltir viðfangsefni á ferð á áreiðanlegan hátt. EOS R6 Mark II getur tekið 4K vídeó í 60 römmum beint á minniskort vélarinnar og raw vídeó út í gegnum Micro HDMI tengi þannig að hún er góður kostur fyrir bæði ljósmyndara og kvikmyndagerðarfólk.

Canon EOS R8: BEST BUY CAMERA 2023-2024

Canon EOS R8 skilar sömu framúrskarandi myndgæðunum og Canon EOS R6 Mark II en á mun lægra verði. Vélin er búin sams konar 24.2 milljón pixla full frame myndflögunni og háþróuðu sjálfvirku fókuskerfi sem getur þekkt og elt úrval af viðfangsefnum. EOS R8 tekur einnig 40 ramma á sekúndu með rafrænum lokara. Í samanburði við EOS R6 Mark II er EOS R8 ekki með innbyggða hristivörn, er með lakari rafhlöðuendingu og er með eina kortarauf fyrir minniskort. Þar af leiðandi er EOS R8 minni, léttari og auðveldari í notkun. Að mati EISA er EOS R8 mjög öflug full-frame myndavél á góðu verði.

Canon RF 135MM F1.8L IS USM: BEST TELEPHOTO LENS 2023-2024

Þessi stutta aðdráttarlinsa er ein af bestu linsum Canon með fasta brennivídd. Tilvalin linsa fyrir víðtæk viðfangsefni eins og portrett, brúðkaup, íþróttir og fréttaljósmyndun. Brennivíddin og f/1.8 ljósop hjálpa notandanum að einangra viðfangsefnið og skapa framúrskarandi blörraðan bakgrunn. Linsan er með 5.5 stoppa hristivörn og fer í 8 stoppa hristivörn með EOS R myndavél sem er búin innbyggðri hristivörn, eins og t.d. EOS R6 Mark II. EISA bendir á að eins og við sé að búast í L línu linsum frá Canon þá sé smíðin framúrskarandi með veðurvörn og notendavænum hnöppum.