16/02/2023 • Eyjólfur Jóhannsson
Sony þróar SORPLAS - nýtt endurunnið plastefni
Sony hefur þróað byltingarkennda tækni við framleiðslu á SORPLAS sem gerir þeim kleift að nota allt að 99% endurunnu efni í raftækin sín.
Sony er umhugað um sjálfbærni í vöruþróun og hafa dregið úr notkun á óendurnýjanlegum auðlindum með því að þróa SORPLAS sem er nýtt endurunnið plast. SORPLAS gerir Sony kleift að nota allt að 99% endurunnu efni í raftækin sín sem er tilvalið fyrir hágæða vörur framleiðandans.
Við hjá Origo viljum auka aðgengi viðskiptavina að grænum notendabúnaði og þjónustu, minnka kolefnisfótspor seldra vara og vera efst í huga viðskiptavina þegar kemur að endingargóðum og umhverfisvænum valmöguleikum.
Allt að 99% endurunnið efni
Endurunnið plast sem notað er í rafeindatækni er venjulega aðeins um 30% hlutfall af endurunnu efni. Byltingarkennd tækni sem Sony notar við framleiðslu á SORPLAS gerir þeim kleift að nota allt að 99% endurunnu efni í raftækin sín.

Gefa gömlu plasti nýtt líf
SORPLAS styður líka enn frekar við endurvinnslu með því að nota m.a. geisladiskaúrgang og afgangsplast frá Sony og öðrum verksmiðjum ásamt öðru efni, t.d. vatnsflöskur úr plasti og öðru plast efni sem notað er daglega í miklum magni.

Létt, sterkt og hitaþolið
Vegna framúrskarandi burðarstyrks og hitaþols sem SORPLAS býður upp á, hafa margir hlutar nýjustu Sony BRAVIA sjónvarpanna verið smíðaðir úr SORPLAS t.d. er bakhlið tækjanna algjörlega úr þessu umhverfisvæna efni ásamt því að vera notað í innri byggingu tækjanna þar sem því er komið við. Með SORPLAS er notkun á hráplasti minnkuð um allt að 60%.

Notkun á SORPLAS getur þ.a.l. breytt ansi miklu t.d. má nefna að við framleiðslu á Sony BRAVIA KDL-40EX52H 40“ hefðbundnu LED sjónvarpi dregur úr losun koltvísýrings um næstum 80% samanborið við hreint plastefni.
Að hjálpa jörðinni að vera falleg til framtíðar
Þróun Sony á SORPLAS hófst fyrir meira en áratug og á þeim tíma beindust rannsóknir Sony aðallega að því hvernig hægt væri að endurnýta rusl úr endurnýttu plasti frá sínum eigin verksmiðjum á skilvirkari hátt.

Meðal möguleika á notkun sem Sony rannsakaði voru iðnaðar skólphreinsiefni og vatnsgleypandi kvoða t.d. fyrir einnota bleiur og við rannsóknir okkar þróaði Sony brennisteinsbundið logavarnarefni sem gerði pólýkarbónatplast mjög ónæmt fyrir eldi. Blöndun þessa logavarnarefnis við pólýkarbónatplastið sem er unnið úr t.d. geisladiskum úr verksmiðjum Sony-samsteypunnar reyndist vera lykillinn að þróun SORPLAS.
SORPLAS er endurunnið plast sem er gert með viðleitni okkar til að varðveita og breyta framleiðsluúrgangi í verðmæta auðlind.
Höfundur blogs
Eyjólfur Jóhannsson
Vörustjóri Sony
Deila bloggi