13/10/2026
Bifröst: Talaðu við Business Central á mannamáli
Ný lausn frá Origo tengir gervigreind beint við Business Central. Stjórnendur fá umsvifalaus svör, fjármáladeildir minnka handavinnu og tengingar krefjast ekki lengur sérsmíði.

Flest fyrirtæki eiga gögnin sem þau þurfa en vandinn er oft fólginn í því hvernig þau eru sótt. Í Business Central liggja svörin við spurningum stjórnenda en leiðin að þeim fer oft í gegnum skýrslubeiðnir, töflureikna og bið.
Bifröst breytir þessu. Lausnin er byggð inn í Business Central og tengir gögn, ferla og viðskiptareglur kerfisins við þá gervigreind sem starfsfólk notar nú þegar, svo sem Claude, ChatGPT eða Microsoft Copilot. Starfsfólk spyr, greinir, vinnur verkefni og þróar eigin sérlausnir sem hentar sínum rekstri í spjalli, með sömu réttindum og sama öryggi og í kerfinu sjálfu.
Munurinn á Bifröst og hefðbundinni tengingu er að gervigreindin gerir meira en að svara spurningum um Business Central. Hún kann á kerfið frá A til Ö, vinnur verkin inni í kerfinu og getur greint fjármál fyrirtækisins með jafnítarlegum hætti og helstu sérfræðingar.
Kannast þú við þetta?
Stjórnendur bíða eftir skýrslum og greiningum
Samþykktir, afstemmingar og lokun fjárhags um mánaðarmót kosta mikla handavinnu og tekur mikinn tíma
Hver ný tenging við Business Central kallar á dýra sérsmíði
Svona virkar Bifröst
Þú spyrð. Í spjalli, til dæmis í Copilot, ChatGPT eða Claude á venjulegri íslensku
Bifröst þýðir. Beiðninni er breytt í aðgerð í Business Central, með þínum réttindum.
Verkið unnið. Svarið eða aðgerðin skilar sér og allt er skráð beint í Business Central.
Bifröst bætir. Kerfið lærir á þinn rekstur, þínar þarfir og þín verkefni og býður upp á frekari sjálfvirknivæðingu
Ekkert nýtt verkfæri til að læra á. Bifröst fæst í gegnum Microsoft Marketplace og er greitt eftir notkun.

Jafn öruggt og Business Central sjálft
Gervigreindin fer ekki fram hjá öryggislíkani Business Central, heldur vinnur innan þess.
Þín réttindi. Bifröst auðkennir sig sem þú og sér ekkert sem þú mátt ekki sjá í kerfinu. Bókanir yfir þínum mörkum fara í samþykktarferli.
Allt skráð. Hver aðgerð er skráð; hver gerði hvað og hvenær. Ákveðin ferli krefjast staðfestingar áður en þau eru keyrð.
Gögnin eru ykkar. Gervigreindin lærir ekki af gögnunum ykkar og þau blandast aldrei gögnum annarra.
Gervigreind er hætt að spjalla. Hún er farin að vinna.
Fyrsta bylgja gervigreindar snérist um spjall en næsta bylgja snýst um gervigreindarþjóna sem vinna verk inni í kerfum fyrirtækja. Forsenda þess er örugg og stöðluð tenging við gögnin.
Sú tenging er nú til. MCP er opinn staðall sem Microsoft, OpenAI og Anthropic styðja. Bifröst nýtir hann til að tengja Business Central við þá gervigreind sem þú velur að nota.
Fyrirtæki sem byrja núna byggja upp reynslu og forskot. Hin bíða áfram eftir skýrslum.
Við erum byrjuð. Viltu slást í hópinn?
Íslensk fyrirtæki eru þegar farin að nota gervigreind til að greina rekstur, bóka og afstemma með sjálfvirkum hætti beint í Business Central. Það er einfaldara að byrja en flestir halda.
Bókaðu sýnikennslu og við sýnum þér hvernig Bifröst vinnur á ykkar eigin gögnum.
Hafa samband
Sjáðu hvernig Bifröst virkar á þínum eigin gögnum
Ræddu við sérfræðinga okkar í Business Central og gervigreind til að prófa
Deila frétt