Bifröst
Nú getur þú látið gervigreind sækja og vinna upplýsingar í Business Central. Bifröst by Origo tengir Business Central á öruggan hátt við Claude, ChatGPT, Microsoft Copilot og aðrar gervigreindarlausnir sem styðja MCP. Þannig fær teymið þitt aðgang að gögnum, ferlum og viðskiptareglum Business Central í gervigreindinni sem það notar nú þegar.

Gervigreind sem vinnur verkin
Bifröst er byggð inn í Business Central sjálft og tengir gögn, ferla og viðskiptareglur kerfisins við þá gervigreind sem notandi kýs. Þannig getur lausnin framkvæmt verk inni í Business Central en ekki bara lesið og svarað spurningum.
Venjulegur MCP þjónn opnar dyr og Bifröst er brúin á milli Business Central og mállíkana sem veitir gervigreindinni umboð í Business Central, tilbúið til notkunar með getu sem nær langt umfram einfaldar tengingar.
Gervigreind sem framkvæmir
Tilbúnar viðskiptaaðgerðir, bókun og losun sölupantana, keyrsla lánshæfismats og bókun í færslubækur - ekki bara lesaðgangur að gögnum.
Skýrslur og mælaborð án forritunar
Býr til skýrslur og mælaborð án mannlegrar viðkomu forritara og heldur þeim við með því einu að segja gervigreindinni hvað eigi að breyrast.
Innbyggð endurskoðun og saga
Gervigreindin fer ekki framhjá öryggi Business Central heldur vinnur innan þess. Full skráning breytinga og eyðinga með afritum og aðgangsstýring niður á svæði með skýrri yfirsýn kerfisstjóra.
Tilbúið fyrir sjálfvirka gervigreindarþjóna
Hannað fyrir sjálfvirka gervigreindarþjóna (agents), ekki bara spjall. Business Central verður að bakenda sem gervigreind keyrir frá upphafi til enda, án notendaviðmóts.
Svona virkar Bifröst
Einfölduð mynd af leið beiðnarinnar, frá gervigreind til Business Central og til baka
Spurðu Business Central að hverju sem er, í gervigreindinni sem þú notar nú þegar
1. Ekkert nýtt verkfæri að læra á: Fáðu svör beint úr þínum eigin gögnum og ferlum, í gervigreindinni sem teymið notar nú þegar.
2. Aðgerðir, ekki bara svör: Láttu gervigreindina stofna sölupöntun, bóka reikning eða afstemma færslu. Samþykktar aðgerðir eru framkvæmdar beint í Business Central.
3. Öryggið helst óbreytt: Gervigreindin vinnur innan núverandi heimilda í Business Central. Hún fer ekki fram hjá öryggislíkaninu og kerfisstjórar hafa fulla yfirsýn.
4. Einfalt að byrja: Bifröst fæst í gegnum Microsoft Marketplace og er greitt eftir notkun.

Reynslusaga
Algengar spurningar
Ræddu við sérfræðing í Business Central og Gervigreind
Prófaðu Bifröst eða hafðu samband og við sýnum þér hvernig það virkar á þínum gögnum.