26/11/2026
Fjölmenni á kynningarfundi um Bifröst

Fullsetið var á morgunverðarfundi í höfuðstöðvum Origo í gærmorgun þar sem stjórnendur fyrirtækja fengu að kynnast Bifröst, lausn sem er að umbreyta vinnu í Business Central með því að sjálfvirknivæða verkferla, draga úr handavinnu og flýta framkvæmd verkefna.
Þjálfuð greind í fjármálum og rekstri fyrir Business Central
Arnþór Ingi HinrikssonArnþór Ingi Hinriksson, forstöðumaður viðskiptalausna hjá Origo fjallaði um það hvernig Bifröst hefur hjálpað fyrirtækjum að skilja rekstur sinn betur, taka betri ákvarðanir og spara tíma með sjálfvirkni. Lausnin er þjálfuð greind í fjármálum og rekstri sem er tengd beint við Business Central og dregur fram svörin sem skipta máli. Einnig greindi Arnþór frá ýmsum sérlausnum og íslenskum notkunarmöguleikum Bifrastar og þeim tækifærum sem skapast þegar viðskiptagögn verða aðgengileg á nýjan hátt.
Dröfn Teitsdóttir, Business Central ráðgjafi hjá Origo, sýndi í framhaldinu hvernig Bifröst nýtist í daglegri vinnu innan Business Central. Með raunverulegum dæmum sýndi hún hvernig gervigreindin getur sjálfvirknivætt verkefni, einfaldað verkferla og sparað starfsfólki tíma. Kynningin undirstrikaði hvernig Bifröst er að breyta því hvernig fyrirtæki vinna með Business Central, frá upplýsingaleit yfir í framkvæmd og sjálfvirkni.
Dröfn TeitsdóttirReykjafell nýtir Bifröst til að einfalda sölu, innkaup og tilboðsgerð
Jóhann GuðmundssonJóhann Guðmundsson, tæknistjóri Reykjafells, sagði frá sjálfvirknivæðingu ferla í sölu og innkaupum sem Reykjafell hefur útfært með Bifröst. Hann fór yfir hvernig fyrirtækið hefur þróað tugi gervigreindarlausna sem allar nota sömu tenginguna inn í Business Central.
Þar nefndi hann meðal annars sölugreiningu sem bendir sölufólki á hvað þarf að bregðast við og erindreka/agenta sem finna vöruskort, gera drög að innkaupapöntunum og úthluta vörum á pantanir sem bíða. Jóhann sýndi líka hvernig útboð upp á hundruð lína verða að tilboði í Business Central þannig að starfsfólk þarf aðeins að fara yfir það sem er óljóst.
Fjórtán gervigreindarlausnir keyra nú ofan á Business Central hjá MS
Þorvaldur E. SigurðssonÞorvaldur E. Sigurðsson og Berglind R. Lúðvíksdóttir frá Mjólkursamsölunni fóru yfir vegferð MS í notkun gervigreindar og hvernig samtenging kerfa hefur skilað miklum árangri. Vegferðin hófst með prófunum á spjallmennum en fór á flug þegar Bifröst tengdi gervigreindina við Business Central.
Í dag keyra fjórtán lausnir sem nota gervigreind og Bifröst beint ofan á Business Central gögnum MS, meðal annars stimplaeftirlit, sjálfvirkar afstemmingar, gæðaeftirlit og vöktun á keyrslum. Sögðu þau frá greiningu sem tók 10 mínútur í stað margra daga áður og frá sjálfvirkum vöruskilum sem eru nú komin í loftið.
Berglind R. LúðvíksdóttirMorgunverðarfundurinn staðfesti að fyrirtæki eru farin að horfa á gervigreind með nýjum hætti. Við þökkum gestum kærlega fyrir komuna og þeim frá Reykjafelli og Mjólkursamsölunni fyrir að deila reynslu sinni af innleiðingu og notkun Bifrastar.
Það er ljóst að möguleikarnir eru fjölbreyttir og við hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi þróun hjá viðskiptavinum okkar og heyra fleiri sögur af því hvernig Bifröst og Business Central vinna saman að því að sjálfvirknivæða ferla, einfalda vinnu og skapa áþreifanlegan rekstrarávinning.
Hafa samband
Sjáðu hvernig Bifröst virkar á þínum eigin gögnum
Ræddu við sérfræðinga okkar í Business Central og gervigreind til að prófa
Deila frétt