12/05/2026

Nýjasta uppfærsla Business Central 28.0: Meiri sjálfvirkni, betri yfirsýn og hraðari ferlar

28. útgáfa af Business Central er komin út, en með uppfærslunni kynnir Microsoft fjölbreyttar nýjungar.

Helstu áherslur í útgáfu 28.0

Copilot og agentar: Sjálfvirkni sem skilar sér í daglegu starfi

Skjöl og viðhengi: Betri stjórnun og geymsla

Power Platform & Dataverse: Meiri sveigjanleiki í samþættingum

Þróun og tækni: Betrumbætur fyrir AL og þróunarteymi

Netverslun og Shopify

Sérlausnir Origo: Nýjungar og þróun

Hvernig á að nálgast uppfærsluna?

Microsoft hefur kynnt nýjustu Business Central uppfærsluna (v. 28.0). Uppfærslan er hönnuð til að skila mælanlegum ávinningi í daglegum rekstri með aukinni sjálfvirkni, skýrari yfirsýn og meiri samþættingu við Microsoft vistkerfið. Niðurstaðan er minni handavinna, betri ákvörðunartaka og hraðari ferlar án þess að fórna öryggi eða stjórnun.

Helstu áherslur í útgáfu 28.0

  • Snjallari sjálfvirkni og betri aðstoð í kerfinu (Copilot og agentar).

  • Skýrari samþættingar og betri vinnsla gagna/skjala (Power Platform, Dataverse, viðhengi).

  • Betrumbætur fyrir þróun, öryggi og rekstur umhverfa (AL og stjórnun).

Copilot og agentar: Sjálfvirkni sem skilar sér í daglegu starfi

Stærsta breytingin í útgáfu 28.0 er áframhaldandi þróun á Copilot og sjálfvirkum "agentum" með það að markmiði að flýta úrvinnslu, fækka mistökum og gefa starfsfólki meiri tíma í það sem skapar virði.

Dæmi um nýjungar:

  • Aukinn stuðningur við agentic lausnir og þróunarflæði (m.a. í VS Code).

  • Verkgluggi (e. task pane) sem safnar saman og sýnir verkefni frá mismunandi agents.

  • Meiri stjórn og gagnsæi: Hægt að yfirfara efni á síðum og stöðva virk verkefni hjá agent þegar þarf.

Fyrir fyrirtæki sem vilja draga úr handavinnu er þetta stórt skref í átt að vinnuumhverfi þar sem kerfið vinnur með þér og tekur virkan þátt í rekstrinum, sem skilar sér í betra flæði, hraðari afgreiðslu og stöðugum gæðum.

Skjöl og viðhengi: Betri stjórnun og geymsla

Meðhöndlun skjala getur oft orðið flöskuháls í ferlum. Í útgáfu 28.0 bætist við stuðningur við ytri geymslu fyrir viðhengi skjala, sem einfaldar stýringu á skjalageymslu og styrkir regluvörslu. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir fyrirtæki með ríkar kröfur um öryggi og rekjanleika.

  • Betri stjórn á hvar og hvernig viðhengi eru geymd.

  • Einfaldari rekstur og samræming við aðrar lausnir og ferla.

Power Platform & Dataverse: Meiri sveigjanleiki í samþættingum

Þegar gögn flæða hnökralaust á milli kerfa verður auðveldara að sjálfvirknivæða ferla og byggja lausnir sem styðja við vöxt. Í nýjustu útgáfunni hefur tengingin við Power Platform verið styrkt enn frekar. Þetta gerir þróun á Power Apps og Power Automate flæðum hraðari og öruggari, þar sem kortlagning gagna yfir í Business Central er nú mun einfaldari.

Þróun og tækni: Betrumbætur fyrir AL og þróunarteymi

Fyrir þróunarteymi og IT felur 28.0 útgáfan í sér endurbætur sem styðja hraðari útgáfur, betri prófanir og sterkari öryggisstefnu í samþættingum svo hægt sé að þróa með trausti og halda rekstri stöðugum.

  • AL próf er hægt að keyra beint úr Visual Studio Code.

  • Betri stuðningur við symbols (NuGet) og greiningu á þróunarvinnu (t.d. BC-Bench).

  • Öruggari útleið (e. outgoing) HTTP köll sjálfgefið, sem styður við öryggis- og stjórnunarkröfur.

Netverslun og Shopify

Fyrirtæki sem eru með netverslanir vita að rétt gögn og góðar samþættingar eru lykillinn að betri upplifun viðskiptavina. Shopify samþættingin hefur fengið endurbætur sem gerir útflutning og samstillingu á vörugögnum markvissari.

  • Item Attributes: Stuðningur við vöru valkosti byggða á eiginleikum.

  • Product Variants: Betri samstilling á afbrigðum, þar á meðal myndum og sérsöfnum.

  • Samræmi: Minni hætta á villum á milli ERP-kerfisins og netverslunarinnar.

Sérlausnir Origo: Nýjungar og þróun

Samhliða nýjungum Microsoft höfum við hjá Origo unnið hörðum höndum að því að uppfæra okkar sérlausnir. Frá síðustu uppfærslu höfum við lagt áherslu á að nýta nýjustu tækni Business Central til að gera okkar lausnir enn öflugri, minnka handavinnu og auka nákvæmni.

Tollvís

Nú samþættist Tollvís við Business Central sem einfaldar innflutning og tollskýrlsugerð verulega.

  • Sjálfvirk kostnaðarskipting: Tollgjöld dreifast sjálfkrafa sem aðfangakostnaður (e. landed cost) á innkaupapantanir.

  • Verðuppfærslur: Kerfið leggur til uppfært sölustig ef vöruverð breytist vegna aðflutningsgjalda.

Rafræn skjöl

Miklar endurbætur hafa verið gerðar á bæði út- og innlestri skjala.

Útflutningur:

  • Kerfið velur nú sjálfkrafa rétt útlit (e. layout) á reikningum eða kreditreikningum miðað við greiðslumáta.

  • Fullur stuðningur við verkbókhald, þar sem línur eru dregnar saman fyrir rétta flokkun.

  • Hægt er að skilgreina sérstök útlit á skýrslum fyrir hvern viðskiptavin.

Innflutningur:

  • Nýr leiðarvísir (e. wizard) aðstoðar notendur við að setja upp innlestur rafrænna skjala skref fyrir skref.

  • Viðhengi fylgja nú með alla leið yfir í fjárhagsfærslur, sem gerir allan rekjanleika mun auðveldari.

Bankalausnir

  • Greiðslur: Kröfunúmer (e. Claim ID) birtist nú í lýsingu greiðslubókarinnar, sem gerir það mun auðveldara að rekja greiðslur til uppruna síns.

  • Afstemming: Nú er hægt að stilla breytur á sjálfvirkar keyrslur í afstemmingu, sem eykur sveigjanleika í sjálfvirkni.

Caren

  • Sjálfvirk bókun: Færslur sem fluttar eru inn úr Caren bókar kerfið nú sjálfkrafa, sem sparar tíma og dregur úr handavinnu.

  • Samskiptaupplýsingar: Nafn og netfang tengiliða flytjast nú sjálfkrafa á milli kerfa.

Hvernig á að nálgast uppfærsluna?

Til að tryggja að þið fáið sem mest út úr útgáfu 28.0 mælum við með eftirfarandi skrefum:

  1. Forgangsröðun: Veljið þær nýjungar sem skipta ykkur mestu máli (t.d. Copilot, skjalageymsla eða Shopify).

  2. Prófun í Sandbox: Yfirfarið hvernig uppfærslan hefur áhrif á ykkar sérlausnir og samþættingar.

  3. Kynning: Uppfærið verklag og kynnið nýjungarnar fyrir lykilnotendum.

Hafa samband

Viltu vita meira um uppfærsluna?

Vantar þig aðstoð við að skoða hvernig þessar nýjungar nýtast þínu fyrirtæki? Heyrðu endilega í okkur!

Deila frétt