Vertu með í hópi ánægðra viðskiptavina
Ávinningur
Upplifðu muninn með Business Central
Aðgengilegt hvar og hvenær sem er
Business Central má nota þar sem þér hentar og veitir alltaf sömu notendaupplifun.
Samþætting kerfa og sjálfvirkni
Bættu samþættingu á milli kerfa og tryggðu öryggi með sjálfvirknivæðingu í Business Central með Origo
Með viðskiptin í vasanum
Snjalltækjaútgáfan styður notkun bæði á starfsstöð og í skýinu á Windows, Android, og iOS tækjum.
Öryggi ofar öllu
Verndaðu gögnin þín gegn óviðkomandi aðgangi með sjálfvirkri gagnadulkóðun Microsoft.
Business Central í skýinu
Taktu betri ákvarðanir með Business Central
Búðu þig undir vöxt með Business Central í skýinu hjá Origo og tengdu saman fjármál, sölu, þjónustu og rekstur til að auka yfirsýn, bæta samskipti við viðskiptavini og taka betri ákvarðanir.
Með Dynamics 365 Business Central öðlast þú betri yfirsýn yfir reksturinn þinn, með skýrslum sem eru til taks hvenær og hvar sem þú þarft á þeim að halda.

Bættu Business Central með gervigreind sem vinnur verkin
Nú getur þú látið gervigreind sækja og vinna upplýsingar í Business Central. Bifröst frá Origo tengir Business Central á öruggan hátt við Claude, ChatGPT, Microsoft Copilot og aðrar gervigreindarlausnir sem styðja MCP.
Bifröst er byggð inn í Business Central sjálft og tengir gögn, ferla og viðskiptareglur kerfisins við þá gervigreind sem notandi kýs. Þannig getur lausnin framkvæmt verk inni í Business Central en ekki bara lesið og svarað spurningum.
Venjulegur MCP þjónn opnar dyr og Bifröst er brúin á milli Business Central og mállíkana sem veitir gervigreindinni umboð í Business Central, tilbúið til notkunar með getu sem nær langt umfram einfaldar tengingar.
Gervigreind sem framkvæmir
Tilbúnar viðskiptaaðgerðir, bókun og losun sölupantana, keyrsla lánshæfismats og bókun í færslubækur - ekki bara lesaðgangur að gögnum.
Skýrslur og mælaborð án forritunar
Býr til skýrslur og mælaborð án mannlegrar viðkomu forritara og heldur þeim við með því einu að segja gervigreindinni hvað eigi að breytast.
Innbyggð endurskoðun og saga
Gervigreindin fer ekki framhjá öryggi Business Central heldur vinnur innan þess. Full skráning breytinga og eyðinga með afritum og aðgangsstýring niður á svæði með skýrri yfirsýn kerfisstjóra.
Tilbúið fyrir sjálfvirka gervigreindarþjóna
Hannað fyrir sjálfvirka gervigreindarþjóna (agents), ekki bara spjall. Business Central verður að bakenda sem gervigreind keyrir frá upphafi til enda, án notendaviðmóts.
Aukin yfirsýn yfir reksturinn
Viðskiptagreind Business Central með Origo
Taktu upplýstar ákvarðanir með samtengdum gögnum úr skýrslum, töflum og mælaborðum Microsoft Power BI yfir fjárhag, bókhald, innkaup og birgðir.
Skoðaðu töflur og skýrslur í rauntíma með innbyggðum skýrslum, Excel eða Power BI. Greindu mynstur og þróun með gögnunum þínum.
Flýttu fyrir fjárhagsuppgjöri og reikningsskilum með samþættu kerfi fyrir viðskiptakröfur og viðskiptaskuldir. Gerðu ferlið hagkvæmara með sjálfvirkri samþættingu Microsoft (e. Microsoft Power Automate).

Öflugir samstarfsaðilar


Sjálfvirknivæðing
Fækkaðu mistökum með sjálfvirkni
Spáðu fyrir um besta tíma til að fylla á birgðir og notaðu spár fyrir sölu og væntanlega birgðaþurrð til að útbúa sjálfvirkar innkaupapantanir.
Einföld samskipti við birgja, sendu fyrirspurnir og breyttu tilboðum í pantanir.
Notaðu birgðastjórnun til að fylla á birgðir, byggðar á raunverulegu framboði og eftirspurn.

Komdu í öryggið í skýinu
Fyrirsjáanleiki í kostnaði, uppfærslum og virkni
Verndaðu gögnin þín gegn óviðkomandi aðgangi með sjálfvirkri gagnadulkóðun Microsoft.
Vertu á verði og fáðu fyrirsjáanleika á kostnaði fjármálakerfisins.
Alltaf á nýjustu uppfærslu með því að vera í Business Central skýinu og getur þú verið viss um að vera með nýjustu virkni og nýjungar án fyrirhafnar.






