28/01/2026

Gagnvirkur almyrkvi Origo á UTmessunni 

Á bás Origo á UTmessunni bjóðum við gestum að staldra við og skoða stafræna vegferð frá nýju sjónarhorni. Þar notum við almyrkvann sem myndmál fyrir hringrás framfara, hvernig rekstur, öryggi, breytingar og vöxtur tengjast í stöðugri samstillingu. 

Hringrás framfara 

Í heimi þar sem tæknin þróast hraðar en nokkru sinni fyrr skiptir máli að stíga út úr daglegu amstri, hitta aðra í greininni og ræða það sem raunverulega skiptir máli, hvert tæknin stefnir og hvernig íslenskt atvinnulíf getur brugðist við þeim áskorunum. 

Hvað skapar raunverulegt virði fyrir íslenskt atvinnulíf? 

Raunverulegt virði verður ekki til af tækninni einni saman, heldur af því hvernig hún er nýtt. Það skapast þegar upplýsingatækni er samstillt rekstri, öryggi og framtíðarsýn og styður skýrar og markvissar ákvarðanir. 

UTmessan hefur fest sig í sessi sem vettvangur þar sem þessi viðfangsefni fá raunverulega athygli, ekki bara í fyrirlestrasölum, heldur í samtölum milli fólks sem stendur frammi fyrir svipuðum áskorunum. Þar snýst umræðan um hvernig nýta megi tæknina á skynsaman hátt, tryggja öryggi og skalanleika og með því skapa raunverulegan ávinning. 

Almyrkvi sem spegilmynd stafrænnar vegferðar 

Á bás Origo á UTmessunni bjóðum við gestum að staldra við og skoða stafræna vegferð frá nýju sjónarhorni. Þar notum við almyrkvann sem myndmál fyrir hringrás framfara, hvernig rekstur, öryggi, breytingar og vöxtur tengjast í stöðugri samstillingu. 

Líkt og almyrkvi snýst stafrænn árangur ekki um einn punkt, eina ákvörðun eða eina lausn, heldur samspil heildarinnar. Þegar forsendur eru skýrar og grunnurinn traustur verður auðveldara að horfa til framtíðar, jafnvel þegar aðstæður breytast hratt. 

Rými fyrir samtal og skýrari sýn 

Tilgangurinn er að skapa rými fyrir samtal um hvernig hagnýt upplýsingatækni verður hluti af samstilltri vegferð að stafrænum framförum. Samtal sem snýst ekki um hversu langt fyrirtæki eru komin, heldur um hvað þurfi að raða saman til að næstu skref verði bæði örugg og markviss. 

Sjáumst á UTmessunni 

Við ætlum að taka forskot á sæluna og halda viðburð á fimmtudaginn, daginn fyrir UTmessuna. Þar munu fimm fremstu gagnasérfræðingar landsins miðla þekkingu og reynslu sinni á gagnavistkerfi Microsoft, þar á meðal Fabric, Foundry og Copilot. Við hlökkum til að hitta ykkur, deila reynslu og ræða hvernig fyrirtæki og stofnanir geta skapað sér öruggt forskot í stafrænum heimi. 

Deila frétt