29/06/2022

Miðstöð snjallvæðingar fær 300 milljóna styrk

Evrópusambandið hefur veitt 300 milljóna króna styrk til að stofna nýja Evrópska miðstöð stafrænnar nýsköpunar (European Digital Innovation Hub: EDIH) hér a landi.

Miðstöð snjall­væðing­ar á Íslandi er samstarfsverkefni Origo, Syndis, Auðnu tæknitorgs og fleiri samstarfsaðila. Verkefnið er hluti af áætlun Evrópusambandsins um stafræna Evrópu (DIGITAL Europe) sem varir frá 2021 til 2027.

Tæki­færi til samþætt­ing­ar 

Með tilkomu Miðstöðvar snjallvæðingar á Íslandi er tekið mik­il­vægt skref í sta­f­rænni þróun sam­fé­lags­ins og skapaður vett­vang­ur til stuðnings við nýsköpunar á því sviði. Miðstöð snjallvæðingar verður sett á laggirnar í haust en þá mun skapast tækifæri til samþættingar, samræmingar og þekkingardreifingar á grunnþáttum snjallvæðingarinnar.

Mik­il­vægt skref

Miðstöð snjallvæðingar mun tengja þarfir við þekkingu, færni og reikniafl innanlands. Jafnframt mun hún bjóða upp á prófanaumhverfi þar sem opinberir aðilar jafnt sem einkafyrirtæki geta prófað sig áfram í nýjustu tækni án þess að leggja út í miklar fjárfestingar. Áhersla verður lögð á að virkja samlegðaráhrif og öflugt tengslanet.

Fjölbreytt tækifæri

Miðstöð snjallvæðingar mun einblína á að bæta tölvuöryggi á landinu, með áherslu á framsækin rannsóknarverkefni og auka framboð menntunar á því sviði. Í samstarfi við Rannís mun Miðstöð snjallvæðingar einnig vekja athygli á tækifærum til sóknar fyrir íslensk fyrirtæki í Digital Europe áætlun Evrópusambandsins, sem mun verja 7,5 milljörðum evra til snjallvæðingarverkefna.

Deila frétt