01/03/2024

Origo kaupir 40% hlut í Advise

Origo hefur fjárfest í hugbúnaðarfyrirtækinu Advise ehf og er eftir viðskiptin eigandi 40% hlutafjár í félaginu. Advise ehf er eigandi og rekstraraðili Advise Business Monitor sem er hugbúnaðarlausn á sviði viðskiptagreindar.

Höfuðstöðvar Origo

Origo hefur fjárfest í hugbúnaðarfyrirtækinu Advise ehf og er eftir viðskiptin eigandi 40% hlutafjár í félaginu. Advise ehf er eigandi og rekstraraðili Advise Business Monitor sem er hugbúnaðarlausn á sviði viðskiptagreindar. Lausnin veitir litlum og meðalstórum fyrirtækjum rauntímaupplýsingar um rekstur og hjálpar til við ákvarðanatöku. Í lausn Advise eru m.a. forsniðnar tengingar við bókhaldskerfi, gagnahýsingu, greiningar fjárhagsgagna, áætlanagerð, frávikagreiningar og mælaborð.

Advise hefur náð eftirtektarverðum árangri hér á landi á stuttum tíma og teymi þeirra hefur þróað hugbúnað sem hjálpar litlum og meðalstórum fyrirtækjum að nýta gögnin sín og bæta reksturinn. Hugbúnaðurinn sparar tíma og pening og einfaldar svo sannarlega lífið.

Jón Björnsson

Forstjóri Origo

Jón Björnsson forstjori Origo og Mikael Arnarsson framkvæmdastjori AdviseJón Björnsson forstjori Origo og Mikael Arnarsson framkvæmdastjori Advise

Ég er virkilega ánægður og spenntur að fá Origo inn í hluthafahóp Advise. Undanfarin misseri höfum við unnið að því að undirbúa lausnina fyrir erlenda markaði. Fjárfesting Origo gerir félaginu kleift að hraða þróun og markaðslegum undirbúningi fyrir þessa vegferð samhliða því að sækja fram innanlands. Reynsla Origo af uppbyggingu lausna fyrir alþjóðlegan markað, viðskiptasambönd hérlendis og erlendis sem og mikil þekking á hugbúnaðarþróun, mun styðja við vegferð og árangur Advise.

Mikael Arnarsson

Framkvæmdastjóri Advise


Stjórnendur geti unnið í Advise business monitor án tillits til bakgrunns í fjármálum eða þekkingar á bókhaldskerfum. Lausnin gefur stjórnendum betri yfirsýn yfir reksturinn, sparar tíma og fyrirhöfn. Advise einfaldar þannig miðlun upplýsinga milli stjórnenda og hagaðila.

Stjórnendur fyrirtækja í öllum stærðarflokkum nota í auknum mæli rauntímaupplýsingar um rekstur við ákvarðanatöku. Við sáum að það vantaði sárlega lausn fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem væri einfaldari í uppsetningu og notkun en þær lausnir sem fyrir voru, jafnframt sáum við eftirspurn eftir einfaldri lausn frá stjórnendum stærri fyrirtækja.

Mikael Arnarsson

Framkvæmdastjori Advise

Deila frétt