09/10/2026

Origo semur við einn öflugasta Business Central dreifingaraðila í heimi

Bifröst frá Origo tengir gervigreind beint við Business Central. Stjórnendur fá umsvifalaus svör, fjármáladeildir minnka handavinnu og tengingar krefjast ekki lengur sérsmíði.

Origo hefur undirritað einkasölusamning vegna sölu á nýrri lausn Origo á heimsvísu. TheAppChannel mun sjá um alla sölu á erlendum vettvangi. Á bak við félagið standa meðal annars James Crowter, eigandi og stofnandi Tecman og Clever Dynamic, og Torben Kragelund, eigandi Confrenzy, öll félög sem sérhæfa sig í Business Central og Microsoft 365 ráðgjöf og innleiðingu og eru með virtari félögum á því sviði í heiminum. Bifröst hefur þegar vakið verðskuldaða athygli innan geirans og eru bundnar miklar vonir við samstarfið við breska félagið.

Við erum gríðarlega ánægð með að hafa náð samningum við þessa aðila um sölu á Bifröst erlendis. Í þessu liggja mikil tækifæri því tengslanet þeirra um allan heim er eitt það sterkasta í þessum bransa. Það að stofnað hefur verið sérstakt félag erlendis til að sjá um sölu á þessari lausn okkar er mjög mikil viðurkenning.

Árni Geir Valgeirsson

•

Forstjóri Origo

Samskipti við Business Central á mannamáli með Bifröst

Bifröst gerir Business Central notendum mögulegt að eiga samtal við kerfið á mannamáli. Með Bifröst kemur einstök gervigreind sem er sérþjálfuð fyrir Business Central og þekkir fjármálaferla og fjárhagsbókhald betur en áður hefur sést.  Bifröst nýtist við samþættingu innri og ytri kerfa og tengir Business Central við umheiminn. Þannig er hægt að láta gervigreind sækja og vinna upplýsingar í Business Central, framkvæma aðgerðir, greina rekstur, bóka og afstemma beint í kerfið. Stjórnendur fá umsvifalaus svör við flóknum spurningum og fjármáladeildir minnka handavinnu.

Lausnin heillaði mig strax þegar ég sá hana fyrst. Eftir því sem ég hef notað hana meira hefur hún orðið eitt af mínum mikilvægustu verkfærum í daglegum störfum. Getan sem hún bætir við og sú framleiðniaukning sem hún skilar í Business Central er óumdeilanleg. Þess vegna er ég afar ánægður með að geta lagt mitt af mörkum til að gera hana aðgengilega sem flestum. Að mínu mati sýnir hún okkur hvernig framtíð vinnunnar mun líta út.

James Crowter

•

Eigandi og stofnandi Tecman og Clever Dynamic

Lausnin er byggð inn í Business Central sjálft og tengir gögn, ferla og viðskiptareglur kerfisins við þá gervigreind sem notandi kýs. Þannig er hægt að framkvæma verk inni í Business Central, auk þess að fá svör við spurningum.  

Bifröst virkar þannig að notandi spyr í spjalli, til dæmis Copilot, ChatGPT eða Claude á íslensku. Bifröst þýðir fyrirspurnina og breytir í aðgerð í Business Central innan réttinda notanda og vinnur verkið innan kerfisins.

Munurinn á Bifröst og hefðbundinni tengingu er að gervigreindin gerir meira en að svara spurningum um Business Central. Hún vinnur verkin inni í kerfinu. Fyrsta bylgja gervigreindar snérist um spjall en næsta bylgja snýst um gervigreindarþjóna sem vinna verk inni í kerfum fyrirtækja. Við erum virkilega stolt af þessari lausn sem hefur verið í þróun hjá okkur í töluverðan tíma, meðal annars vegna öryggisþátta. Allar aðgerðir og vinnsla notenda er skráð beint í kerfi fyrirtækisins og öll gögn haldast þar því gervigreindin lærir ekki af gögnum notanda og þau blandast aldrei gögnum annarra.

Árni Geir Valgeirsson

•

Forstjóri Origo

Við erum byrjuð. Viltu slást í hópinn?

Íslensk fyrirtæki eru þegar farin að nota gervigreind til að greina rekstur, bóka og afstemma með sjálfvirkum hætti beint í Business Central. Það er einfaldarar að byrja en flestir halda.

Nánar um Bifröst

Bókaðu sýnikennslu og við sýnum þér hvernig Bifröst vinnur á ykkar eigin gögnum.

Hafa samband

Ræddu við sérfræðing í Business Central og Gervigreind

Prófaðu Bifröst eða hafðu samband og við sýnum þér hvernig það virkar á þínum gögnum.

Deila frétt