20/03/2026
Origo er vinnustaður í fremstu röð 2025; Viðurkenning sem tilheyrir starfsfólkinu
Við erum afar stolt að vera „Vinnustaður í fremstu röð 2025“ hjá Moodup en það sem skiptir okkur mestu máli er fólkið á bak við titilinn. Viðurkenningin byggir á heildstæðu mati á starfsánægju, endurgjöf starfsfólks og því hvernig brugðist er við henni.

Við erum stolt af því að Origo hefur verið valinn „Vinnustaður í fremstu röð 2025“ hjá Moodup. Viðurkenningin byggir á reglulegum mælingum á starfsánægju, endurgjöf starfsfólks og því hvernig brugðist er við henni.
Fyrir okkur skiptir mestu máli hvað liggur að baki niðurstöðunnar en það er starfsfólkið sem segir sína skoðun og leggur metnað í að skapa framúrskarandi starfsumhverfi.

Hjá Origo leggjum við áherslu á að skapa umhverfi þar sem fólk fær að hafa áhrif, þróast í starfi og taka þátt í að móta hvernig við vinnum og þjónustum viðskiptavini.
Við erum afar stolt af viðurkenningunni enda leggjum við mikinn metnað í að skapa starfsfólki okkar góðan vinnustað. Hún endurspeglar sterka menningu innan Origo þar sem regluleg samtöl, virk hlustun og viðbrögð við endurgjöf starfsfólks eru í forgrunni. Við vitum að ánægja starfsfólks er lykillinn að árangri og munum áfram leggja okkur fram um að vera vinnustaður þar sem fólki líður vel, upplifir traust og tekur virkan þátt í að móta vinnustaðinn til framtíðar.
Kristín Gestsdóttir
•
Mannauðsstjóri Origo
Hjá Origo starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga sem vinnur saman að því að skapa viðskiptavinum forskot í stafrænum heimi. Þar verða til lausnir á vandamálum sem skipta máli en líka vinnustaður þar sem er pláss fyrir bæði metnað og gleði. Því það skiptir máli að hafa gaman á leiðinni.
Með nánu samstarfi og skýrri framtíðarsýn höldum við áfram að tengja saman fólk, hugmyndir og tækni. Þessi viðurkenning er okkur mikilvæg hvatning til að halda áfram að þróa vinnustaðinn og skapa virði fyrir bæði starfsfólk og viðskiptavini.
Deila frétt
