Skýjalausn í gæðastjórnun í mánaðarlegri áskrift
CCQ er heildstæð lausn til að meðhöndla þætti sem snúa að bættum verkferlum, hlítingu staðla, laga og reglugerða. Markmiðið er að einfalda þér og þínu starfsfólkið að miðla upplýsingum og þekkingu til starfsfólks.

Stöðugar umbætur
Betri gæðastýring
Þegar þú rekur fyrirtæki þá viltu gera vel. Fylgja réttum leikreglum, vanda til verka og njóta svo uppskerunnar þegar þú sérð fyrirtækið þitt blómstra. Það þarf ekki okkur til að segja þér að þetta kallar á öguð vinnubrögð. Hverri atvinnugrein fylgja gæðakröfur og staðlar sem oft getur verið heljarmikið verkefni að halda utan um og uppfylla. Það er þess vegna sem rétta gæðastjórnunarkerfið er gulls ígildi, og það er þess vegna sem við smíðuðum CCQ.
Traust ferli
Gæði ofar öllu
Gæðastjórnun snýst einfaldlega um að gera betur í dag en í gær. Gott kerfi kortleggur hvert skref sem þú ætlar að taka, hjálpar þér á skilvirkan hátt að ná settum markmiðum og heldur utan um allt saman svo þú hafir yfirsýn. Það er engin tilviljun að á meðal notenda CCQ eru allt frá litlum fjölskyldufyrirtækjum upp í stærstu fyrirtæki landsin og allt þar á milli.
CCQ er sérsniðið að þörfum íslenskra fyrirtækja og nógu sveigjanlegt til að geta mætt hinum fjölbreyttu kröfum mismunandi atvinnugreina. Hönnun kerfisins byggir á áratuga reynslu sérfræðinga af gæðastjórnun.

Helstu kostir CCQ
Einfalt vottunarferli
Innbyggðir staðlar og skýr yfirsýn yfir kröfur einfalda alla vinnslu við vottun. Úttektaraðilar fá sérsniðið yfirlit sem flýtir fyrir ferlinu.
Betri yfirsýn
Persónumiðað yfirlit sýnir þér nákvæmlega það sem þú þarft að vita. Fylgstu með verkefnum, stöðu skjala og áhættum á einum stað.
Öruggari rekstur
Kerfisbundin áhættustjórnun og rekjanleiki allra aðgerða tryggir að engin mikilvæg atriði gleymist.
Aukin upplýsingagjöf
Sjálfvirkar tilkynningar og staðfestingar á lestri tryggja að allir séu upplýstir. Engin töpuð skilaboð eða óvissa um hvort starfsfólk hafi kynnt sér mikilvæg skjöl.
Heildstætt kerfi
Að hugsa fyrir öllu
Hjartað í CCQ er gæðahandbók þíns fyrirtækis. Þar er haldið utan um alla verkferla, reglur, reglugerðir og staðla hvernig þið eruð að uppfylla ykkar skyldur. Þú sérð svo á augabragði þau frávik sem þarf að bregðast við í úttektareiningunni.
Aðra kerfishluta velurðu svo að nýta þér eftir þínum þörfum. Kerfið býður til að mynda upp á hæfnisstjórnun, áhættustjórnun og eignastjórnun, og gerir þér kleift að taka formlegt tillit til ábendinga, atvika og kvartana, hvort sem þau berast innan fyrirtækisins eða utan.
Allt á einum stað
Að standa við stóru orðin
Að gera áætlun, fylgja henni eftir og athuga svo hvernig til hefur tekist - það er gæðastjórnun í hnotskurn. Síðastnefnda atriðið, staðfestingin á því að við séum að standa okkur, kemur í gegnum úttektarferli. En fyrir mörg fyrirtæki geta úttektir verið bæði tímafrekar og kostnaðarsamar. Hvort sem um ræðir innri úttektir fyrirtækisins eða aðkomu ytri úttektaraðila, auðveldar CCQ ferlið til muna.
