Microsoft 365

Microsoft 365 er heildarlausn sem sameinar allt það besta úr Office 365, Windows 11 og Enterprise Mobility + Security. Microsoft 365 er leiðandi á meðal skýjalausna þegar kemur að aukinni framleiðni með lausnum á borð við Microsoft Teams, Word, Excel og PowerPoint, ásamt snjöllum skýjalausnum og öryggi á heimsmælikvarða.

Brand myndefni

Microsoft samstarfsaðili

Microsoft
Microsoft 365 logo
Enterprise Mobility and Security logo

Ráðgjöf

Ráðgjöf, innleiðing og fræðsla

Sérfræðingar okkar greina núverandi ástand, koma með tillögur að nýju verklagi og gera áætlun í þau verkefni sem þarf til að komast í nýtt verklag með hjálp Microsoft 365 og tengdra lausna.

Við bjóðum einnig upp á fulla þjónustu við innleiðingu Microsoft 365 auk þjónustu fyrir notendur og tæknifólk eftir innleiðingu.

Viðskiptavinir geta fengið sérfræðinga á sinn vinnustað sem þjálfa starfsfólk og kennir því á nýja vinnuumhverfið.

myndskreyting

Ávinningur

Kostir Microsoft 365

Nýsköpun

  • Smáforrit sem einfalda alla vinnu við efnisgerð.

  • Einfalt að vinna efni í hvaða tæki sem er, hvenær sem er.

  • Auðvelt að setja fram upplýsingar á sjónrænan hátt.

Samvinna

  • Tengstu fólki, verkefnum og forritum með Teams og SharePoint Online.

  • Haltu utan um tölvupóst og tímaskipulag með Outlook.

  • Eigðu radd-, mynd-, og textasamtöl með Teams.

Innbyggt og því einfalt

  • Lágmarkaðu kostnað vegna innleiðingar, stjórnunar og viðhalds.

  • Yfirgripsmikill stuðningur við PC, Mac, iOS og Android.

  • Settu upp ný tæki án þess að snerta á þeim með Windows AutoPilot.

Öryggi

  • Stýring snjalltækja.

  • Varsla og flokkun gagna.

  • Varar við óeðlilegri hegðun notenda og árásum.

  • Umsýsla öryggismála.

  • Hjálpar til við innleiðingu GDPR.

Persónuvernd

Microsoft 365 og GDPR

Microsoft 365 inniheldur lausnir sem hjálpa til við innleiðingu og eftirfylgni á persónuverndarlöggjöf ESB – General Data Protection Regulation (GDPR). Sem dæmi má nefna:

  • Compliance Manager: Metur öryggi gagna sem geymd eru í skýjaþjónustum Microsoft og kemur með tillögur um það sem má bæta í stillingum og verklagi.

  • Fjölþátta auðkenning: Hægt að krefjast frekari auðkenningar, t.d. frá farsíma sem er búið að tengja við notanda.

  • Intune hefur stjórn á gögnum og forritum á símum og snjalltækjum.

  • Flokkun, aðgangsstýring og dulkóðun á viðkvæmum gögnum með Azure Information Protection.

  • Cloud Application Security notar gervigreind og Data Loss Prevention skönnun til að koma í veg fyrir að viðkvæm gögn berist út fyrir fyrirtækið.

Engar lausnir, kerfi eða þjónustur einar og sér geta séð til þess að fyrirtæki uppfylli kröfur GDPR. Hins vegar mun rétt tækni og hugbúnaður einfalda innleiðingu GDPR til muna.

myndskreyting

Framlína

Fáðu sem mest úr fólkinu í framlínunni með Microsoft 365 F3

  • F3 er sniðið að starfsfólkinu sem vinnur í framlínunni; Sölufólki, afgreiðslufólki, þjónustufulltrúum, leiðbeinendum og öðrum þeim sem dags daglega endurspegla ásýnd fyrirtækisins gagnvart viðskiptavinum.

  • F3 gefur aðgang að grunnþjónustum Microsoft 365 á mjög hagstæðu verði.

  • Staffhub auðveldar skipulag vakta bæði fyrir stjórnendur og starfsfólk.

  • Teams býr til spjallþræði sem gerir þeim sem eru ekki alltaf við tölvu kleift að fylgjast með og taka þátt í því sem er að gerast á vinnustaðnum.

  • Intune gerir svo vinnustaðnum kleift að hafa stjórn á vinnutengdum gögnum og tryggja grunnöryggi síma og snjalltækja.

myndskreyting
Góð samvinna

Fá ráðgjöf