Tryggðu gæði og öryggi hugbúnaðar

Prófanir eru lykilþáttur í að tryggja að hugbúnaður uppfylli fyrirfram skilgreindar kröfur notenda og gæðastaðla áður en hann er tekinn í notkun. Hjá Origo bjóðum við upp á faglega þjónustu við prófanir sem miðar að því að greina vandamál snemma í þróunarferlinu, draga úr kostnaði við lagfæringar og auka ánægju notenda.

Ung kona með hrokkið hár situr við fartölvuna

Ávinningur

Hagræðing

Með því að finna og laga galla snemma í þróunarferlinu sparast umtalsverður tími og fjármunir.

Bætt notendaupplifun

Hugbúnaður sem stenst gæðakröfur uppfyllir væntingar notenda, dregur úr óánægju og skapar tryggð meðal viðskiptavina.

Aukið öryggi

Prófanir greina veikleika og tryggja að hugbúnaðurinn uppfylli staðla eins og GDPR, HIPAA og ISO.

Áralöng reynsla

Sérfræðiþekking

Okkar markmið er að spara þér bæði tíma og peninga með því að finna vandamál áður en viðskiptavinir þínir gera það. Eftir áralanga reynslu höfum við séð öll möguleg mistök og vitum hvernig á að koma í veg fyrir þau áður en þau verða að kostnaðarsömum vandamálum.

myndskreyting

Prófanir

Hvað gerum við nákvæmlega?

Ráðgjöf

Hvernig getum við hjálpað þér að ná meiri árangri?