Lausn sem skjalar sjálfvirkt uppsetningu á Windows netþjónum. Lausnin tengist miðlægt inn á netþjóna og skjalar uppsetningu á þeim.
Gögnin eru birt í stöðluðu formi og geymd í öruggu skjölunarkerfi Origo sem geymir breytingar. Þannig er hægt að rekja breytingar aftur í tíma.
Lausnin er einnig í virkri þróun og bætist Linux möguleiki við fljótlega.
Tengingarvandamál einstakra netþjóna og bilanir á þeim er ekki innifalið í þjónustu.
Skjölun miðast t.d við eftirfarandi en takmarkast ekki við:
Varan er seld sem mánaðarleg þjónusta eða árleg úttekt.
Árleg úttekt: Fast gjald fyrir afnot af hugbúnaði meðan á úttekt stendur. Vinna við úttekt er ekki innifalin og er plönuð í samráði við verkkaupa út frá umfangi verkefnis. Um er að ræða úttekt eða átaksverkefni.
Mánaðarleg þjónusta: Fast mánaðargjald og skjölun er uppfærð eins oft og viðskiptavinur óskar. Innifalið er vinna við viðhald á lausn og það sem fellur til. Tryggt er að nýir netþjónar hjá viðskptavini séu skjalaðir.