Varaaflgjafar (genset / UPS) fyrir mikilvæga innviði
Við höfum víðtæka reynslu í að útvega neyðarorkukerfi til mikilvægra innviða eins og til dæmis sjúkrahúsa og gagnavera. Slík umhverfi krefjast hámarks áreiðanleika og eru lausnir okkar hannaðar til að veita stöðugt afl undir öllum kringumstæðum, bæði við venjulega notkun og við rafmagnsleysi.
Gagnaver
Sjúkrastofnanir
Stóriðja
Vegakerfi
Ofl

Við styðjum orkunýtni og sjálfbærni
Hvað ef rafmagnið fer?
Rafmagnsleysi getur haft miklar og alvarlegar afleiðingar fyrir alla sem treysta á stöðugan aflgjafa. Því getur verið mikill kostur að hafa neyðarrafmagnslausn uppsetta sem varabúnað sem tekur við ef bilun verður.
Burtséð frá því hvort þörf er á neyðarorku fyrir lítið verkefni eða stærri flókna uppsetningu höfum við réttu lausnina. Lausnirnar okkar, hvort um er að ræða rafala- eða UPS-kerfi, eru hannaðar til að vernda fyrirtæki/mannvirki gegn rafmagnsleysi með því að veita stöðugt og áreiðanlegt neyðarafl frá 8 kVA til nokkurra 1000 kVA.

Einfasa aflgjafar frá 350VA - 10.000VA
Einfasa aflgjafarnir eru frá 350VA upp í 10.000VA og henta nánast hvar sem er þar sem verja þarf búnað gegn straumsveiflum og tryggja rekstur nauðsynlegra tækja við straumrof.
Aflgjafarnir eru tilvaldir fyrir fjölbreyttan búnað, þar á meðal posa, afgreiðslukassa, öryggis- og eftirlitskerfi sem og stærri tölvukerfi. Í mörgum útfærslum er hægt að bæta við rafhlöðustækkunum til að lengja rekstrartíma við straumrof, auk netkorta og annars aukabúnaðar eftir þörfum og aðstæðum.

Þriggja fasa aflgjafar frá 10kW - 150kW
Þriggja fasa aflgjafar frá Schneider Electric, 10 kW – 150 kW, tryggja áreiðanlegan rekstur og orkusparnað. Hægt er að bæta við rafhlöðustækkunum, bypass-rofum og öðrum aukabúnaði eftir þörfum. Galaxy VS aflgjafinn er sérstaklega hentugur fyrir gagnaver og iðnaðarumhverfi, með háa orkunýtni og mátahönnun fyrir sveigjanleika og viðhald.

Symmetra 32 kW - 500 kW
Symmetra aflgjafar frá Schneider Electric, 32 kW – 500 kW, tryggja hámarks áreiðanleika fyrir mjög krefjandi rekstrarumhverfi. Einn helsti kostur þeirra er mikill sveigjanleiki og sjálfvirk afkaststýring sem tryggir einfaldara viðhald og möguleikann á stækkun eftir þörfum.
Aukabúnaður eins og rafhlöðustækkanir og bypass-rofar lengja rekstrartíma og auka öryggi. Fullkomin lausn fyrir gagnaver, fjarskipti og iðnað þar sem órofinn rekstur skiptir sköpum.

Við styðjum orkunýtni og sjálfbærni
Ráðgjöf og fjölbreyttar lausnir
Öll rafalakerfi eru samsett af (smíðuð með virtum) dísilvélum og rafala sem uppfylla ströngustu kröfur um gæði og áreiðanleika. Við vinnum náið með viðskiptavinum okkar til að tryggja að aðstaða þeirra uppfylli kröfur (forskriftir) og ráði við álag, hvort sem það er lítil varalausn eða stór.
Innsýn í verkefnin okkar
Í gegnum árin höfum við komið að fjölbreyttum verkefnum með viðskiptavinum okkar þar sem við höfum tryggt áreiðanlegar varaaflslausnir. Verkefnin okkar spanna allt frá smærri kerfum fyrir fyrirtæki yfir í stórar lausnir fyrir iðnað, gagnaver og opinberar stofnanir. Við leggjum áherslu á að mæta þörfum hvers viðskiptavinar með hagkvæmum, umhverfisvænum og nýstárlegum lausnum sem tryggja stöðugan rekstur, óháð ytri aðstæðum.




Fréttir og blogg
Þú gætir einnig haft áhuga á
