Grótta - Örugg hýsing gervigreindar á Íslandi

Grótta er rekstrarþjónusta frá Origo sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að keyra gervigreindarlíkön í lokuðu og öruggu skýjaumhverfi á Íslandi. Fyrirtæki geta því nýtt krafta gervigreindar án þess að viðkvæm gögn yfirgefi íslenska lögsögu. 

Myndskreyting

Íslenskt skýjaumhverfi 

Grótta leysir helstu áskoranir fyrirtækja sem vilja nýta gervigreind en þurfa að uppfylla strangar kröfur um persónuvernd og upplýsingaöryggi. Ólíkt því að senda gögn og keyra líkön hjá erlendum skýjaþjónustum, tryggir Grótta að öll úrvinnsla eigi sér stað innanlands. Þetta lágmarkar ekki aðeins tafir (e. latency) heldur tryggir að fyrirtæki hafi fullkomna stjórn á því hverjir hafa aðgang að líkönunum. 

Origo sér um uppsetningu, rekstur, vöktun og öryggi innviðanna á meðan viðskiptavinir einbeita sér að því að nýta gögn sín og þróa gervigreindarlausnir. Þannig geta fyrirtæki nýtt nýjustu gervigreindartækni og sjálfvirknivæðingu án þess að fórna kröfum um persónuvernd, öryggi eða stjórn á eigin gögnum.

myndskreyting

Helstu kostir

  • Gervigreind keyrð innan íslenskrar lögsögu
  • Fullt gagnaveldi og stjórn á aðgangi
  • Rekstur og öryggi í höndum sérfræðinga Origo
  • Sveigjanleg keyrsla á opnum gervigreindarlíkönum
  • Minni töf (e. latency) vegna innlendrar vinnslu
  • Hentar vel í hybrid skýjalausnir

Ráðgjöf

Viltu vita meira?

Lærðu meira um hvernig þú getur hýst gervigreindarlíkönin þín á öruggan hátt