Tryggð endurheimt gagna á augabragði!

Morgunverðarfundur þar sem verkfæri til að endurheimta gögn á augabragði verða kynnt.

Kona situr á pallinum í sumarhúsi og vinnur í tölvunni í kvöldsólinni
12/9/2024
08:30 - 11:30
Hvammur, 1. hæð, Grand Hótel Reykjavík

Á þessum fundi ætla sérfræðingar frá IBM, Predatar og Origo að kynna byltingakennd tól og tæki sem geta skipt sköpum fyrir fyrirtæki og stofnanir sem verða fyrir netárás. Árásir halda áfram að vera stórt vandamál fyrir fyrirtæki um allan heim og er talið að um 81% fyrirtækja á heimsvísu hafi orðið fyrir árásum 2024.

Fáir gera sér grein fyrir að undir 1% afrita eru prófuð árlega og að aðeins 1 af hverjum 14 endurheimtum gagna virka. Þess vegna er allt ferlið í kringum endurheimt gagna lykillinn að því að fyrirtæki verði ekki gjaldþrota við netárás.

Staðreyndin er nefnilega sú að 60% fyrirtækja með allt að 50 starfsmenn eða veltu að 10 milljónum Evra verða gjaldþrota innan 6 mánaða frá netárás.

Starfsmenn og stjórnendur upplýsingatæknideilda ættu því ekki að missa af þessari ráðstefnu þar sem öryggissérfræðingar kynna nýjungar sem geta bjargað fyrirtækjum frá gjaldþroti.

Skráning á viðburðinn

Skráðu þig hér

segðu frá

KL 08:30 -09:00

Morgunverður og spjall

Protect your business. Recover with confidence

Predatar Recovery Assurance solution. How Predatar and IBM FlashSystems enable f... sjá meira

Chris Snell, Senior Solutions Architect, Predatar

Örstutt hlé

IBM Storage FlashSystems - Layers of Technology Strengthen Cyber Resilience

Immutable backups with Safeguarded Copy and CSM/CDM. Detect threats within 1 min... sjá meira

Filip Vandenneucker, IBM Storage Principal Technical Consultant

Kaffihlé

IBM Tape - The last line of defense

Tape is a key technology in your cyber resilience strategy. The physical airgap ... sjá meira

Julien Demeulenaere, EMEA Sales Leader for IBM Tape solutions

Hvaða þjónustur býður Origo?

Farið yfir helstu þjónustur á sviði afritunar og endurheimt gagna

Ottó Freyr Jóhannsson, forstöðumaður skýja- og hýsingaþjónustu Origo

KL 11:30 -11:35

Fundarlok

Fyrirlesarar

Fyrirlesarar sem hafa náð langt í sínu fagi

Chris Snell

Senior Solutions Architect, Predatar

Chris hefur unnið hjá öryggisafritunar- og DR-framleiðendum í 20 ár, þar á meðal hjá ýmsum farsælum sprotafyrirtækjum eins og Veeam, Zerto og PlateSpin. Nú er hann hins vegar að hjálpa til við að leiða Predatar til svipaðs árangurs á meðan hann sinnir norræna markaðnum.

Filip Van den Neucker

IBM Storage Principal Technical Consultant

Filip er með ítarlega reynslu á sviði gagnaöryggis, gagnastjórnunar og geymslulausna með áherslu á gagnasieiglu og sjálfbærni. Hann er vinsæll fyrirlesari á fræðslu- og viðskiptaviðburðum um geymsluinnviði og öryggi og hefur haldið fjölmarga fyrirlestra og vinnustofur um netöryggisþol.

Julien Demeulenaere

EMEA Sales Leader for IBM Tape solutions

Julien er með 18 ára sérfræðireynslu á sviði innviða og hefur sérhæft sig í segulböndum í 10 ár, fyrst hjá StorageTek og er nú hjá IBM. Fyrir hafði hann langa reynslu af hugbúnaðarinnviðum og er með vottun á VMware og Veeam. Eftir að hafa búið á Írlandi og Spáni er hann nú staðsettur í París, Frakklandi.

Ottó Freyr Jóhannsson

Forstöðumaður / Director, Skýja- og hýsingaþjónustur

Ottó leiðir teymi hæfileikaríks fólks sem byggir upp og stýrir MSP-vettvangi Origo sem er hýstur í gagnaverum á Íslandi og í almenningsskýjum. Hann hefur lagt sig fram við að skilja þarfir og áskoranir viðskiptavina og samstarfsaðila í upplýsingatæknigeiranum.