Kjarna viðbætur sem auka skilvirkni og starfsánægju
Kjarninn í þeim nýjungum sem kynntar verða á Notendaráðstefnu Kjarna 2024 eru verkfæri sem auka skilvirkni, starfsánægju og minnka starfsmannaveltu

Á Notendaráðstefnu Kjarna 2024 verður margt áhugavert kynnt sem skiptir máli fyrir árangursríka mannauðsstjórnun.
Við munum heyra hvernig:
Kjarni getur einfaldað verklag og aukið skilvirkni
Nýtt Kjarna snjallforrit auðveldar starfsmönnum aðgengi að upplýsingum
Rúna Launavakt getur fylgst með launaþróun á markaði
Kortlagning á hegðunarstílum (DISC profile) hjálpar við að styrkja teymi og leiðtoga
Nýtt samþykktarferli sem hjálpar Landsvirkjun við launabreytingar
Skráning á viðburðinn
Skráðu þig hér
segðu frá
Erindi sem skipta máli fyrir mannauðsstjórnun
KL 09:00
Morgunverðarhlaðborð
Helstu nýjungar í Kjarna og vegvísir fyrir næsta árið
Einfaldara verklag er leiðarljósið
Halla Árnadóttir, forstöðumaður Mannauðs- og Launalausna Origo, og Þorgerður Guðný Guðmundsdóttir, vörustjóri Launahluta Kjarna
Starfsmannaupplýsingar í Kjarna snjallforriti
Auðvelt aðgengi að starfsmannaupplýsingum
Nína Margrét Daðadóttir, framendaforritari í Kjarna
Rúna Launavakt vaktar launaþróun á markaði!
Rauntímaupplýsingar um laun
Þorgerður Guðmundsdóttir, vörustjóri Launahluta Kjarna
Hlé og veitingar
"DISCover Leadership" - til öflugri stjórnunar
Mikilvægi þess að vera með fjölbreytta styrkleika innan teyma.
Ingibjörg Lilja Þormóðsdóttir, mannauðsstjóri Helix Health og Rósa Björk Sigurgeirsdóttir, mannauðssérfræðingur hjá Origo
Ávinningurinn af nýju samþykktarferli launa hjá Landsvirkjun
Harpa Víðisdóttir, mannauðsstjóri Landsvirkjunar
Panelumræður með notendum Kjarna
Brynjar Már Brynjólfsson, mannauðsstjóri, Isavia, Harpa Víðisdóttir, mannauðsst... sjá meira
KL 11:45
Fundarlok
Fyrirlesarar
Fyrirlesarar sem elska sitt fag

Halla Árnadóttir
Forstöðumaður mannauðs- og launalausna Origo
Halla hefur starfað í 20 ár sem sérfræðingur í hugbúnaði til mannauðsstjórnar og hefur brennandi áhuga á hvernig tæknin getur hjálpað fyrirtækjum til árangursríkari mannauðsstjórnunar, aukinnar starfsánægju og minni starfsmannaveltu.
Harpa Víðisdóttir
Mannauðsstjóri Landsvirkjunar
Harpa á langan og farsælan feril sem mannauðsstjóri hjá Landsvirkjun og Verði tryggingum. Hún hefur brennandi áhuga á að skapa jákvætt og gefandi vinnuumhverfi og er í þeim tilangi sífellt að uppfæra þekkingu sína og innleiða ný tól til að ná betri árangri.
Ingibjörg Lilja Þormóðsdóttir
Mannauðsstjóri Helix Health
Ingsa, eins og hún er kölluð, er ástríðufullur nörd sem elskar að styrkja fólk, teymi og fyrirtæki til að verða sterkari, hraðari og árangursríkari á sjálfbæran hátt. Þetta hefur hún einmitt gert hjá fyrirtækjum eins og Trackwell, Taktikal, Controlant, Rafal og nú hjá Helix.

Nína Margrét Daðadóttir
Framendaforritari í Kjarna
Nína Margrét er með BSc í Hugbúnaðarverkfræði frá HR og hefur sérhæft sig í vef- og framendaforritun. Áður en hún gekk til liðs við Kjarna teymið, vann hún hjá Bankalausnum Origo. Hún hefur ástríðu fyrir snjallri framendaforritun sem leiðir notandann áfram og auðveldar honum lífið.

Rósa Björk Sigurgeirsdóttir,
Sérfræðingur í mannauðsdeild Origo
Rósa er með BS gráðu í sálarfræði og MS gráðu í stjórnun. Hún hefur unnið sem sérfræðingur í mannauðstengdum málum í tæpan áratug. Þá hefur hún sérhæft sig í persónugreiningartólinu "DISC profile" enda áhugasöm um hvernig eiginleikar persónunnar geta skipt sköpum í hópavinnu og stjórnun.

Þorgerður Guðný Guðmundsdóttir
Vörustjóri Launahluta Kjarna
Þorgerður hefur starfað um árabil sem ráðgjafi í launahluta Kjarna og er því vel þekkt meðal viðskiptavina. Hún hefur óbilandi áhuga á viðfangsefninu og hefur því verið valin sem vörustjóri Rúnu Launavaktarinnar, sem hún trúir að muni virkilega hjálpa íslenskum fyrirtækjum í ákvörðunum um launakjör.