Skiptir hröð endurheimt gagna máli fyrir þitt fyrirtæki ef það verður fyrir árás?

Reynslusaga Brimborgar og nýjar lausnir gegn gagnaárásum.

17/11/2023
08:30 - 12:00
Salur FG, 2 hæð, Hilton Reykjavík Nordica.

Athugið allir þeir sem voru bókaðir á ráðstefnuna 20. október eiga tryggt sæti á nýrri dagsetningu 17. nóvember.

Á fundinum mun Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar segja okkur frá hvernig stjórnendur brugðust við þegar Brimborg varð fyrir gagnaárás í sumar og hvaða lærdóm þau drógu af árásinni til að tryggja sig betur gegn slíkri ógn í framtíðinni.

Þá munum heyra hvernig hægt er að taka skyndiafrit (snapshot) og skanna daglega afritin af mikilvægustu gögnum fyrirtækisins, sem gerir fyrirtækjum kleift að koma rekstrinum í gang á einum degi í stað vikna.

Reynsluboltar halda erindi

Við fáum góða erlenda gesti í heimsókn, Shelly Howrigon, sem er titluð "Worldwide Sales Leader IBM Storage" og er algjör reynslubolti á sínu sviði enda verið hjá IBM í 36 ár. Síðan mætir á svæðið Barry Whyte (ekki söngvarinn) sem er titlaður "IBM Master Inventor" og hefur verið leiðandi í þróun IBM SAN Volume Controller, Storewize og FlashSystem og lagði hann meðal annars grunn að fyrstu diskastæðunum á markaðnum árið 2007 með SSD sem náðu yfir 1 milljón IOPS.

Shelly og Barry munu kynna nýjungar fyrir IBM Storage og framtíðina á því sviði og ein af þeim er IBM Storage Defender sem er kerfi sem einfaldar yfirsýn og utanumhald, vinnuflæði og verkferla til að lágmarka áhættuna á gagnatapi t.d. vegna net- og gagnaárása. Hér er 3 mínútna myndskeið sem skýrir virknina út á einfaldan hátt. 

Morgunverðarhlaðborð verður frá 08:30 til 09:00 og þá hefst formleg dagskrá sem lýkur kl. 12:00. Tvö stutt hlé verða tekin í dagskránni, það fyrra eftir seinna erindið hennar Shelly Howrigon og hið síðara eftir fyrra erindið hans Barry White.

Skráningarform

segðu frá

Dagskrá fundarins

KL 08:30 -09:00

Morgunverðarhlaðborð

The business impact of a Cyber Attack

Shelly Howrigon, IBM Worldwide Sales Leader

Gagnaárásin á Brimborg - Viðbrögð og lærdómur

Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar

IBM Storage Defender can restore data in less than a day

Shelly Howrigon, IBM Worldwide Sales Leader

Stutt hlé

The building blocks for Cyber Resiliency and Storage Defender

Flash Core Modules with compression and encryption, Policy based DR solutions, S... sjá meira

Barry Whyte, IBM Master Inventor

Stutt hlé

IBM Storage technical update and roadmap

Barry Whyte, IBM Master Inventor

KL 12:00

Dagskrá endar

Fyrirlesarar

Shelly Howrigon

IBM Storage Virtualization and IBM Storage Defender - Worldwide at IBM

Algjör reynslubolti á sínu sviði enda starfað hjá IBM í 36 ár. Shelly heldur erindi um allan heim og hefur sérhæft sig í gagnaárásum og gagnageymslum.

Egill Jóhannsson

Forstjóri Brimborgar

Hann hefur leitt Brimborg síðan 1999 en fyrirtækið hefur tífaldast í veltu og bætt mörgum alþjóðlegum bílaumboðum við vöruúrval sitt á þeim tíma.

Barry Whyte

IBM Master Inventor

Algjör rokkstjarna á sínu sviði þvi hann hefur verið leiðandi í þróun IBM SAN Volume Controller, Storewize og FlashSystem og lagði m. a. grunn að fyrstu diskastæðunum á markaðnum með SSD, sem náðu yfir 1 milljón IOPS.