Stafrænar lausnir sem breyta leiknum.
Nýsköpunarviðburður ársins hjá Origo. Komdu og fáðu ferskar og nýstárlegar hugmyndir sem geta breytt leiknum og gefið þínu fyrirtæki forskot.

Nýsköpunarviðburður ársins hjá Origo, en öll erindin eiga það sameiginlegt að segja frá áskorunum sem við erum að leysa með viðskiptavinum okkar og ávinninginn af þeim. Erindin geta því gefið þér nýjar og ferskar hugmyndir um hvernig þitt fyrirtæki getur náð betri árangri með snjöllum stafrænum lausnum.
Viðburðurinn er haldinn á lokadegi „Innovation week“ sem 3.500 manns heimsækja og haldin er í Grósku hugmyndahúsi suðupotti nýsköpunar. Origo er styrktaraðili vikunnar.
Morgunhressing kl. 10:00 og hefst formleg dagskrá kl. 10:30. Áætluð fundarlok eru kl. 12:00.
Komdu í Grósku og fáðu ferskar og nýstárlegar hugmyndir.
Skráning á viðburðinn
Skráðu þig hér
Dagskrá full af ferskum hugmyndum
Fyrirlesarar
Reynslumiklir fyrirlesarar
Ebenezer Böðvarsson
Team Leader Security Consulting, Syndis and BCP.Online
Hann er einn af okkar fremstu sérfræðingum í upplýsingaöryggi og starfaði m.a. sem upplýsingaöryggisstjóri í evrópsku fjármálafyrirtæki í 10 ár.

Arna Harðardóttir
Director in Healthcare Solutions, Origo
Hún er með 10 ára reynslu úr heilbrigðisgeiranum sem viðskiptastjóri og stjórnandi markaðs- og sölumála og þekkir stafrænar þarfir markaðarins vel.

Brynjólfur Borgar Jónsson
Founder and CEO of DATALAB
Hann er einn af okkar helstu sérfræðingum í hagnýtingu gagna og nútíma gagnatækni þar sem gagnavísindi og gervigreind eru notuð til að bæta ákvarðanir, þjónustu og rekstur.

Kjartan Hansson
Director Digital Solutions, Origo
Hann er með yfir 20 ára reynslu í notendamiðaðri hönnun og vörustjórnun snjallra lausna sem sjálfvirknivæða, einfalda og auka hagkvæmni í rekstri.

Hreinn Eggertsson
Team Leader e-Business, Origo
Hann hefur yfir 20 ára reynslu í sjálfsafgreiðslulausnum og sjálfvirknivæðingu í ferlum og hugbúnaði sem bæta þjónustu og rekstur fyrirtækja í ólíkum atvinnugreinum.

Sigrún Eva Valsdóttir
Consultant, Quality and Purchasing Solutions, Origo
Hún hefur m.a. sérhæft sig í Timian Innkaupa- og Eldhússtýringakerfinu með áherslu á næringa- og kolefnissporsútreikning máltiða.