14/02/2023 • Björn Gunnar Birgisson

Grænu skref Lenovo

Lenovo eru í fararbroddi í kolefnisjöfnun búnaðar og hefur Origo í samstarfi við Lenovo kolefnisjafnað allar Think fyrirtækjatölvur sem hafa verið seldar eru frá miðju ári 2022. Sömuleiðis hafa allar nýjar Lenovo Yoga fartölvur verið kolefnisjafnaðar.

Björn Gunnar Birgisson, vörustjóri Lenovo

Lenovo er stærsti tölvuframleiðandi í heimi og hefur því ríkar skyldur er varðar umhverfismál og sjálfbærni. Við hjá Origo viljum auka aðgengi viðskiptavina að grænum notendabúnaði og þjónustu, minnka kolefnisfótspor seldra vara og vera efst í huga viðskiptavina þegar kemur að endingargóðum og umhverfisvænum valmöguleikum.

Lenovo hefur sett sér skýr þrepaskipt markmið í umhverfismálum:

  • Árið 2025 - verða allar umbúðir umhverfisvænni, endurnýtanlegar og lífbrjótanlegar.

  • Árið 2030 - verður útblástur gróðurhúsaloftegunda hjá fyrirtækinu 50% minni en 2019.

  • Árið 2050 - verður öll framleiðsla Lenovo kolefnishlutlaus

Frekari upplýsingar um stefnu og markmið má finna í sjálfbærniskýrslu Lenovo.

Kolefnisjafnaður tölvubúnaður

Lenovo eru í fararbroddi í kolefnisjöfnun búnaðar og hefur Origo í samstarfi við Lenovo kolefnisjafnað allar ThinkPad, ThinkStation og ThinkCentre fyrirtækjatölvur sem hafa verið seldar eru frá miðju ári 2022. Sömuleiðis hafa allar nýjar Lenovo Yoga fartölvur verið kolefnisjafnaðar. Markmiðið er að allar tölvur frá Lenovo verði kolefnisjafnaðar frá miðju ári 2023. Einnig er í boði að kolefnisjafna eldri búnað og nýja skjái.

Umhverfismál í forgrunni hjá LenovoUmhverfismál í forgrunni hjá Lenovo

Kolefnisjöfnun Lenovo fer í verkefni á vegum Sameinuðu þjóðanna þar sem leysa þarf mikilvæg umhverfismál í löndum og borgum um allan heim. Ferlið er vottað og rekjanlegt og má fletta upp raðnúmeri hverrar tölvu til þess að sjá hvernig kolefnisjöfnun hennar fór fram. Origo setur inn kolefnispor búnaðar á reikninga fyrirtækisins svo að viðskiptavinurinn getur séð á skýran hátt hvert sporið er og hversu mikið þarf að kolefnisjafna.

Frekari upplýsingar um kolefnisjöfnun Lenovo má finna á hér.

Grænni framleiðsla og förgun

Lenovo hefur unnið markvisst að því að þróa nýjar framleiðsluaðferðir (m.a. lægra hitastig við lóðun tölvuhluta), lífbrjótanlegar umbúðir úr sykurmassa og bambus ásamt því að finna nýjar flutningsleiðir sem eru umhverfisvænni. Byggingarefni búnaðar verða endurvinnanlegri og því minna um frumplast og meira um endurnýtt plast þar sem þess þarf. Málmar eru valdir út frá umhverfissjónarmiðum og fækkun koltrefjaefna.

Origo er í samstarfi við Foxway um umhverfisvæna förgun og endurnýjun á búnaðiOrigo er í samstarfi við Foxway um umhverfisvæna förgun og endurnýjun á búnaði

Sem dæmi þá hætti Lenovo að nota límband til þess að loka umbúðum og sparaði um 54 tonn eða 20.000 km af límbandi á ári. Umfang annarra umbúða sem Lenovo hefur minnkað síðan 2008 nemur rúmum 3.300 tonnum sem er ekkert smáræði.

Bambus og sykurreyr leysa pappa af hólmi, eru léttari og lífbrjótanleg efni sem ekki þarf að endurvinna heldur má molta eins og önnur lífræn efni. Þetta hefur einnig í för með sér að það kemst um 18% meira af búnaði í hverja sendingu sem sparar um 7% af koltvísýringi við flutning.

Origo hefur samið við fyrirtækið Foxway um förgun og endurnýjun á notuðum síma- og tölvubúnaði. Nú geta viðskiptavinir slegið upplýsingar um raftæki á borð við snjallsíma, spjaldtölvur, fartölvur, snjallúr og leikjatölvur inn í gagnagrunn á síðu Origo og fengið upplýsingar um hvort tækið sé hæft til endurnýtingar og hversu mikið fæst greitt fyrir tækið.

Frekari upplýsingar um förgun og endurnýjun má finna hér.

Grænni viðskipti

Í dag er hægt að sía niðurstöður í netverslun Origo eftir þeim umhverfisvottunum og stöðlum sem Lenovo tölvubúnaður uppfyllir. Þannig auðveldum við viðskiptavinum að taka upplýsta og ábyrga ákvörðun á sem stystum tíma. Jafnframt eru grænar áherslur dregnar fram í vörulýsingum og orkumerkingar framsettar í viðeigandi vöruflokkum.

Stefnt er að því að Origo kolefnisjafni allar tölvur frá Lenovo árið 2023Stefnt er að því að Origo kolefnisjafni allar tölvur frá Lenovo árið 2023

Sömuleiðis hefur Origo aukið sýnileika og endurbætt framsetningu á notuðum og endurnýttum búnaði í netverslun Origo ásamt því að bæta við sérstöku svæði fyrir lagersölur. Það er oftast betra fyrir umhverfið að finna vörunni nýtt heimili heldur en að láta farga henni.

Origo afhendir vörur frá Lenovo í upprunalegum pakkningum eða í jarðgeranlegum burðarpokum frá Vegware gegn endurgjaldi.  Notkun á pappír er lágmarkaður með einföldum límmiðum og endurnýtingu á umbúðum og pappakössum.

 

https://images.prismic.io/new-origo/4782c62a-0230-4546-ad54-6a8cec323988_Bj%C3%B6rn+Gunnar+Birgisson.jpg?auto=compress,format

Höfundur bloggs

Björn Gunnar Birgisson

Vörustjóri

Deila bloggi