26/06/2025
Hvernig tekur þú á tækniskuld til að öðlast forskot í nýsköpun og vexti?
Í fyrri greinum skoðuðum við hugtakið tækniskuld og helstu birtingarmyndir hennar. Hér skoðum við nánar áhrifin sem hún getur haft á fyrirtæki og hvernig hægt er að bregðast við á árangursríkan hátt.

Eins og við höfum skoðað í fyrri greinum þá safnast tækniskuld upp með tímanum og áhrif hennar verða sífellt sýnilegri og kostnaðarsamari. Tækniskuld getur orðið að hindrun sem hægir á framförum, eykur kostnað og dregur úr samkeppnishæfni fyrirtækja.
Hér skoðum við hvernig tækniskuld hefur áhrif á rekstur og hvaða skref þú getur tekið til að takast á við hana.
Raunkostnaður tækniskuldar
Tækniskuld er ekki aðeins tæknilegt tæknilegt vandamál. Hún hefur bein og umtalsverð áhrif á resktrarafkomu og samkeppnisstöðu fyrirtækja. Hér eru fimm helstu þættir sem stjórnendur ættu að hafa áhyggjur af.
Hægari þróun og markaðssókn
Eftir því sem tækniskuld vex verður sífellt tímafrekara að þróa nýja virkni. Verkefni sem áður tóku daga að klára geta farið að taka vikur eða mánuði. Þetta hægir á getu fyrirtækja til að bregðast við breytingum á markaði og fyrirtæki missa því af nýjum tækifærum.
Aukinn rekstrarkostnaður
Viðhald eldri kerfa getur haft dulinn en raunverulegan kostnað sem vex með tímanum. Þessi kostnaður birtist í ýmsum myndum:
Hærri gjöld fyrir úreltan vélbúnað og hugbúnaðarleyfi.
Þörf fyrir sérfræðinga með þekkingu á eldri kerfum.
Tímafrekari viðgerðir á kerfum sem bila oftar.
Aukinn rekstrarkostnaður vegna óskilvirkni og tvíverknaðar.
Fjármagn sem ætti að fara í nýsköpun og vöxt fer í staðinn í að halda gömlum kerfum gangandi.
Aukin hætta á mistökum
Úrelt kerfi og handvirk ferli auka líkur á mannlegum mistökum. Slík mistök geta haft alvarlegar afleiðingar:
Tapaðar tekjur vegna niðritíma.
Skert gæði þjónustu við viðskiptavini.
Villur í miðlun upplýsinga eða afgreiðslu pantana.
Lægri starfsánægja vegna endurtekinna vandamála.
Minni samkeppnishæfni
Á meðan samkeppnisaðilar sem byggja á nýrri kerfum geta sinnt meiri nýsköpun eru fyrirtæki með mikla tækniskuld stöðugt að slökkva elda til að halda hlutum gangandi. Með tímanum getur þetta leitt til þess að fyrirtækið dregst aftur úr á markaði.
Aukin öryggishætta
Úrelt kerfi eru sérstaklega viðkvæm fyrir öryggisbrotum og netárásum. Algengt er að fyrirtæki hætti að gefa út öryggisuppfærslur fyrir eldri útgáfur hugbúnaðar, sem gerir þau að auðveldu skotmarki fyrir netárás. Þetta getur valdið gríðarlegum skaða og jafnvel leitt til sekta vegna brota á persónuverndarlögum.

Hvernig er best að takast á við tækniskuld?
Tækniskuld má finna í nánast öllum fyrirtækjum. Spurningin er ekki hvort hún sé til staðar, heldur hversu mikil hún sé og hvernig er best að takast á við hana.
1. Framkvæmdu stöðumat og greiningu
Byrjaðu á að kortleggja núverandi tækniumhverfi og greindu tækniskuldina með skipulögðum hætti. Gott er að meta kerfi út frá aldri, áreiðanleika, viðhaldsþörf og mikilvægi fyrir reksturinn. Talaðu við starfsfólk sem notar kerfin daglega og spyrðu um helstu flöskuhálsa. Niðurstaðan ætti að vera skýr mynd af þeim svæðum þar sem tækniskuldin er að valda mestum vandræðum.
2. Forgangsraðaðu með skynsamlegum hætti
Það er yfirleitt óraunhæft að ráðast í að leysa alla tækniskuld í einu. Notaðu niðurstöður greiningarinnar til að forgangsraða verkefnum eftir tveimur meginþáttum:
Hversu mikil áhrif hefur vandamálið á reksturinn?
Hversu fljótlegt er að leysa vandamálið?
Byrjaðu á þeim verkefnum sem skila mestum ávinningi miðað við fyrirhöfn.
3. Búðu til áætlun
Settu upp skýra áætlun með tímalínu, áföngum og mælanlegum markmiðum. Mikilvægt er að áætlunin taki mið af daglegum rekstri. Fyrirtækið þarf að geta haldið áfram að þjónusta viðskiptavini á meðan tækniumhverfið er bætt. Skiptu verkefninu niður í viðráðanlega áfanga sem hver um sig skilar áþreifanlegum árangri.
4. Komdu á sjálfbærum verkferlum
Að leysa tækniskuld er aðeins fyrsta skrefið. Mikilvægara er að koma í veg fyrir að hún myndist aftur. Innleiddu verklag og staðla sem koma í veg fyrir að tækniskuld safnist upp.
5. Leitaðu sérfræðiaðstoðar
Tækniskuld er flókið viðfangsefni sem krefst sérþekkingar. Oft geta utanaðkomandi sérfræðingar veitt ómetanlega innsýn og ráðgjöf. Þeir geta hjálpað þér að greina vandann, forgangsraðað verkefnum og þróað raunhæfa áætlun. Sérfræðingar geta einnig miðlað bestu starfsvenjum og varað við algengum mistökum.
Næstu skref
Með skipulögðu ferli getur þú smám saman dregið úr tækniskuldinni. Kerfin verða skilvirkari, starfsfólk afkastameira, þróunarhraði eykst og sveigjanleiki til að bregðast við nýjum tækifærum eykst. Í stað þess að eyða óhóflega miklum tíma og fjármunum í að viðhalda úreltum kerfum getur þú frekar einbeitt þér að nýsköpun og framþróun.
Fá ráðgjöf
Þarft þú að losna undan tækniskuld?
Sérfræðingar Origo bjóða upp á heildstæða ráðgjöf fyrir stafræna vegferð þar sem tækniskuld er meðhöndluð á markvissan hátt.