26/05/2025 • Linda Dögg Guðmundsdóttir

Þrjú einföld skref að öruggri notkun á Microsoft 365 Copilot

Linda Dögg Guðmundsdóttir, öryggis- og lausnaarkitekt hjá Origo, fer yfir mikilvæg atriði sem þarf að huga að áður en Copilot er tekin í notkun.

Á viðburðinum „Örugg nýting gervigreindar“, sem haldinn var á vegum Ský, fjallaði Linda Dögg Guðmundsdóttir, öryggis- og lausnaarkitekt hjá Origo, um mikilvægi þess að undirbúa sig fyrir örugga og ábyrga notkun gervigreindar í starfsemi fyrirtækja. 
 
Í fyrirlestrinum, sem bar heitið Þrjú einföld skref að öruggri notkun á Microsoft 365 Copilot, kom skýrt fram að með vaxandi möguleikum Copilot aukast líka kröfurnar, ekki aðeins tæknilega séð, heldur einnig þegar kemur að gagnastýringu, fræðslu og stefnumótun. Með því að huga að þessum þáttum áður en Copilot er tekin í notkun er hægt að tryggja að það styðji við rekstur fyrirtækisins, án þess að auka áhættu eða óvissu. 

Linda Dögg Guðmundsdóttir á viðburði SkýLinda Dögg Guðmundsdóttir á viðburði Ský

Gervigreindin er nú þegar komin – oft án þess að við vitum af því 

Nýjustu rannsóknir sýna að 2 af hverjum 3 starfsmönnum nota gervigreindartól í vinnunni, með eða án samþykkis fyrirtækisins. Það þýðir að margir hafa þegar hafið notkun á gervigreind án þess að fyrirtæki hafi sett stefnu, tryggt öryggi gagna eða veitt þjálfun til starfsmanna sinna. 

Þrjú einföld en nauðsynleg skref að öruggri notkun á Copilot

1. Gagnaöryggi – þekktu og verndaðu gögnin þín 

Copilot dregur svör sín úr þeim gögnum sem notandinn hefur aðgang að. Ef aðgangur starfsmanna er of víður eða gögnin ekki rétt merkt, getur Copilot dregið viðkvæmar upplýsingar óvænt inn í svör sín. Hvað er hægt að gera? 

  • Kortleggja gögn og skoða aðgangsstýringar 

  • Hreinsa til í sameign og SharePoint svæðum 

  • Merkja gögn með „Sensitivity Labels“ í Microsoft Purview 

  • Stilla DLP reglur og nýta SharePoint Advanced Management og Intune til að tryggja öryggi gagnanna  

Frekari upplýsingar má nálgast hér.

2. Fræðsla – þjálfun áður en Copilot er tekið í notkun  

Örugg og markviss notkun Copilot byggir á þjálfun og meðvitund. Starfsfólk þarf að skilja hvernig tólið virkar, og bera ábyrgð á því sem Copilot skilar. Hvað er hægt að gera? 

  • Skyldu fræðsla áður en aðgangur að Copilot er veittur 

  • Kenna hvernig á að spyrja Copilot og túlka svörin 

  • Byrja með tilraunahópi (POC) og byggja á þeirri reynslu 

  • Búa til dæmabanka með raunhæfum spurningum og notkun 

Meira um Copilot Scenario Library má nálgast hér.

3. Gervigreindarstefna – skýr sýn og ábyrgð 

Stefnuleysi getur leitt til ábyrgðarleysis. Með skýrum ramma um hvernig Copilot er notaður, hver ber ábyrgð og hvernig árangur er metinn má tryggja að gervigreind nýtist fyrirtækinu til framtíðar. Hvað er hægt að gera? 

  • Skrifa hnitmiðaða stefnu um tilgang og notkun Copilot 

  • Skilgreina ábyrgð og samþykkta notkunartilfelli 

  • Setja markmið, mælikvarða og viðbragðsáætlun 

  • Taka stefnuna inn í verklag, fræðslu og skýrslugerð  

Lestu einnig

Þetta þarf að hafa í huga áður en Microsoft Copilot er tekið í notkun

Ný þróun frá Microsoft: Hvað tekur við? 

Á árlegri ráðstefnu Microsoft, Microsoft Build 2025, var tilkynnt að Copilot verði fljótlega enn öflugri og að fyrirtæki þurfi að búa sig undir nýjan veruleika. 

  • Copilot Tuning gerir fyrirtækjum kleift að aðlaga hegðun Copilot að eigin þörfum, m.a. hvað varðar svarmynstur, gögn og áherslur. 

  • Multi-Agent Orchestration gerir notendum kleift að vinna með marga Copilot aðstoðarmenn (e. copilot agents) í einu, hver og einn með skilgreint hlutverk og að þeir geti unnið saman sín á milli.  

Við erum því að færast úr því að hafa einn Copilot sem aðstoðarmann, yfir í að verða sjálf stjórnendur yfir mörgum Copilot aðstoðarmönnum. 

Fasi 1, 2 og 3: Hvert stefnum við? 

Microsoft hefur lýst þróun Copilot í þremur stigum: 

  • Fasi 1: Copilot fyrir eigin notkun: Notandinn vinnur með Copilot sem sinn aðstoðarmann

  • Fasi 2: Copilot sem starfsfélagi: Copilot verður hluti af teyminu, með skilgreint hlutverk og sameiginlega notkun 

  • Fasi 3: Þú ert Copilot stjórnandi: Notendur stjórna mörgum Copilot aðstoðarmönnum sem vinna saman að markmiðum fyrirtækisins 

Stuðningur við íslensku – Copilot mun styðja íslensku frá og með júní 2025 

Nýtt tól – ný ábyrgð 

Copilot býður upp á einstök tækifæri til að auka framleiðni, bæta ferla og nýta gögn betur. En ávinningurinn næst aðeins ef rétt er staðið að málum. Origo styður fyrirtæki í að innleiða Copilot með öryggi, fræðslu og stefnu að leiðarljósi. Hafðu samband ef þú vilt hefja innleiðingu á Copilot með öruggum hætti. 

Copilot

Hvernig getur Copilot hjálpað þínu fyrirtæki að ná meiri árangri?

Copilot er öflugt gervigreindartól sem getur gagnast öllum sem nota Microsoft lausnir við dagleg störf.

https://images.prismic.io/new-origo/aC3k8ydWJ-7kSZy-_Copilotblogg-1080x1080px-.jpg?auto=format%2Ccompress&rect=237%2C85%2C771%2C771&w=1080&h=1080

Höfundur bloggs

Linda Dögg Guðmundsdóttir

Öryggis- og lausnaarktitekt hjá Origo

Deila bloggi