Límmiða- og kortaprentlausnir

Við bjóðum öflugan hug- og vélbúnað fyrir prentun sem hjálpar þínu fyrirtæki að ná samkeppnisforskoti í stafrænum heimi. Það geta allir fundið sér vöru við sitt hæfi, við þjónustum framleiðslu- og flutningsfyrirtæki, smásölur, heildsölur, vöruhús og dreifingarmiðstöðvar. Við erum samstarfsaðilar stærstu fyrirtækja heims í thermal prentbúnaði og hugbúnaði fyrir límmiða- kortaprentun, útlitshönnun og prentumsjón.

BarTender
Honeywell
Zebra
Brand myndefni

Allt á einum stað

Við höfum mikla reynslu og þekkingu af sölu og þjónustu á prentlausnum. Hjá okkur finnur þú bæði hug- og vélbúnað sem henta þínum rekstri.

Búnaður sem hentar þínu fyrirtæki

Allt frá litlum borðprenturum til afkastamikilla sjálfvirkra iðnaðarprentara.

Sniðið að þínum þörfum

Flestir geta fundið vöru við sitt hæfi, allt frá einyrkjum til stórra alþjóðlegra fyrirtækja. Alhliða ráðgjöf til að finna réttu lausnina fyrir þitt fyrirtæki.

Heildar prentlausn

Hugbúnaður, vélbúnaður og rekstrarvara, allt á einum stað.

Einfalt og þægilegt 

Við hjálpum þér að finna rétta búnaðinn og aðstoðum þig við að setja hann upp.

Vélbúnaður

Korta- og miðaprentarar

Hægt er að kaupa miða- og kortaprentara og tengja við annan hugbúnað eða upplýsingakerfi eins og Póststoð, fylgibréfaprentun, bókasafnskerfi, sölukerfi o.s.frv. Hjá okkur er líka að finna mikið af rekstrarvöru fyrir miða- og kortaprentun eins og límmiða, prentborða, plastkort og litaborða í kortaprentara.

Límmiða- og kortaprentari

Hugbúnaður

BarTender

Sveigjanleg og fjölbreytt lausn

Hugbúnaðurinn frá BarTender er mjög sveigjanlegur og fjölbreyttur. Hann býr yfir öllum helstu þáttum sem snúa að merkingum í fyrirtækjum og stofnunum í dag eins og prentun á strikamerkjum og QR-kóðum, heimilisföngum, vörulýsingum, breytilegum og hlaupandi númerum, fyrningardagsetningum, uppruna- og rekjanleikamerkingum og RFID skráningum í merki og prentun.

Auðvelt að setja upp

BarTender býður upp mikla sjálfvirkni, miðlæga stjórnun og er auðvelt að tengjast gögnum í öðrum kerfum. Það er einfalt að setja upp hugbúnaðinn og nota, hann er til í mismunandi útgáfum sem hentar breiðum hópi, allt frá einyrkjum til stórra alþjóðlegra fyrirtækja. 

Vélbúnaðinn er hægt að fá í ýmsum stærðum og gerðum - allt frá litlum borðprenturum til að merkja sendingar og vörur upp í afkastamikla sjálfvirka miðaprentara. 

Sjálfvirkni og samþætting 

Það er einfalt að setja upp sjálfvirka prentferla þar sem BarTender vaktar svæði, tekur upp skipanir og sendir á skilgreinda prentara, einnig er hægt að stýra mörgum prenturum í einu. Hugbúnaðinn er svo hægt að tengja við fjárhags-, sölu-, vöruhúsakerfi o.fl. Auðvelt er að sækja gögnin í Excel/CSV og gagnagrunna (SQL)

Staðlar og reglugerðir

Lausnin uppfyllir alþjóðlega staðla og reglur um merkingar s.s. GS1 strikamerkjastaðal, lyfjamerkingar (FDA 21 CRF part 11 og UDI), innihaldslýsingar (FIC), sérstakar eiturefnamerkingar (GHS) og brettamerkingar GS1-128 (SSCC).

BarTender

Skapaðu, sjálfvirknivæddu og stýrðu merkimiðum, strikamerkjum, RFID merkjum og fleiru með BarTender® by Seagull Scientific.

0:00

0:00

Fartölva og kaffibolli

Ráðgjöf

Fá ráðgjöf