Birgjar
Origo er stoltur samstarfsaðili
Miðlægur búnaður
Vörur og þjónusta
Lenovo netþjónar (server)
Við afhendum System x netþjóna samsetta, prófaða og með firmware, UEFI, diagnostics o.s.frv. uppfært. Allir netþjónar eru með upprunalegt minni frá framleiðanda til að tryggja rekstraröryggi og hámarks uppitíma.
IBM System Storage
IBM System Storage geymslulausnir færa þér yfirburða gagnaöryggi og lægri eignarhaldskostnað. Gagnageymslur henta tölvukerfum fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum.
IBM z Systems stórtölvur
IBM z Systems, eða IBM stórtölvur, eru leiðandi í áreiðanleika og uppitíma, eru með hæstu öryggisvottanir á markaðnum og eru hannaðar til að keyra undir miklu álagi.
Netbúnaður
Við erum samstarfsaðili Cisco, Fortinet og Juniper sem eru stærstu framleiðendur á netbúnaði í dag.
Kerfissalir í öllum stærðum
Við bjóðum vörur frá APC - American Power Conversion, stærsta framleiðanda varaaflgjafa í heimi. APC framleiðir varaaflgjafa fyrir AC og DC kerfi í öllum stærðum og gerðum.
Afritun gagna
Eitt mikilvægasta atriðið í rekstri upplýsingakerfa er afritun gagna. Ef eitthvað fer úrskeiðis er nauðsynlegt að geta endurheimt gögn sem glatast eða skemmast.
Linux, AIX eða IBM
IBM Power högun hefur verið í þróun síðustu 25 ár. Í dag geta viðskiptavinir valið lausnir sem keyra á mismunandi útgáfum af Linux, AIX eða IBM i stýrikerfinu.
Sýndarþjónar í veitu
Sérfræðingar okkar sjá um rekstur á þínum kerfum á fyrsta flokks búnaði frá IBM, Lenovo og VMware. Allur kostnaður er fastur og fyrirsjáanlegur. ISO 27001 öryggisvottun og ITIL þjónustuferlar tryggja örugga og skilvirka þjónustu.
Þjónusta við afritunarkerfi
Fyrirbyggjandi viðhald - Vélbúnaður, kælibúnaður og rafstöðvar
Þjónusta tengist því hvort kerfi skili hámarksafköstum miðað við uppgefið afl og uppsettar rafhlöður. Hún er veitt alla
virka daga frá mánudegi til föstudags á dagvinnutíma frá kl. 8.00 til 17.00. Þjónustan sem er tengd skipulögðu eftirliti
er framkvæmd innan dagvinnutíma. Við vinnsluafbrigði og bilun í búnaði kemur APC sérfræðingur þjónustusala
á staðinn og annast viðgerð og gangsetningu á ný.
Sérfræðingar þjónustusala annast alla viðhaldsþjónustu við kerfin og starfa þeir í nánum tengslum við alþjóða
stuðningsþjónustu APC-Schneider í Danmörku.