Miðlægur búnaður

Origo er leiðandi í uppsetningu, þjónustu og rekstri á miðlægum búnaði. Sérfræðingar Origo geta veitt ráðgjöf um meðal annars netbúnað, netþjóna, gagnageymslur, stórtölvur og lausnir fyrir kerfissali.

Ungur maður heldur á kaffibolla

Birgjar

Origo er stoltur samstarfsaðili

Ráðgjöf

Við ráðleggjum þér um næstu skref

Ef þú ert ekki viss um að netbúnaðurinn þinn standist nýjustu öryggiskröfur, netþjónarnir og gagnastæðurnar afkasta ekki á þeim hraða sem starfsemin krefst og reksturinn er óstöðugur þá geta sérfræðingar Origo ráðlagt þér um næstu skref.

Miðlægur búnaður

Vörur og þjónusta

Lenovo netþjónar (server)

Við afhendum System x netþjóna samsetta, prófaða og með firmware, UEFI, diagnostics o.s.frv. uppfært. Allir netþjónar eru með upprunalegt minni frá framleiðanda til að tryggja rekstraröryggi og hámarks uppitíma.

Netbúnaður

Við erum samstarfsaðili Cisco, Fortinet og Juniper sem eru stærstu framleiðendur á netbúnaði í dag.

Kerfissalir í öllum stærðum

Við bjóðum vörur frá APC - American Power Conversion, stærsta framleiðanda varaaflgjafa í heimi. APC framleiðir varaaflgjafa fyrir AC og DC kerfi í öllum stærðum og gerðum.

Linux, AIX eða IBM

IBM Power högun hefur verið í þróun síðustu 25 ár. Í dag geta viðskiptavinir valið lausnir sem keyra á mismunandi útgáfum af Linux, AIX eða IBM i stýrikerfinu.

Sýndarþjónar í veitu

Sérfræðingar okkar sjá um rekstur á þínum kerfum á fyrsta flokks búnaði frá IBM, Lenovo og VMware. Allur kostnaður er fastur og fyrirsjáanlegur. ISO 27001 öryggisvottun og ITIL þjónustuferlar tryggja örugga og skilvirka þjónustu. 

Fréttir og blogg

Hvað felst í þjónustunni?

    Kona tekur vinnusímtal á skrifstofunni

    Ráðgjöf

    Fáðu ráðgjöf um miðlægar lausnir frá sérfræðingum okkar