CCQ
CCQ gæðastjórnunarlausn
CCQ tryggir meðal annars:
kerfisbundna innleiðingu jafnlaunastaðalsins og að kröfur hans séu uppfylltar.
markvissa skjölun, en hún getur falist í gerð ferla, verklagsreglna, vinnulýsinga og eyðublaða.
að verklag og aðferðir gefi skýra mynd af launaviðmiðum og að auðvelt sé að vísa í skjalfest gögn þessu til stuðnings.
gagnsæi launakerfisins sem er mikilvæg forsenda jafnlaunavottunar.
Kjarni
Kjarni mannauðs- og launalausn
Kjarni einfaldar alla yfirsýn og skýrslugerð varðandi launamál fyrirtækja, en Kjarni gerir stjórnendum kleift að:
halda utan um launagögn og kjör starfsmanna og gera vandaðar úttektir á þeim.
verðmeta störf eftir ábyrgð, hæfniskröfum, menntun eða reynslu, og taka út jafnlaunagreiningu með slíkri flokkun.
nota launagreiningu til að móta jafnlaunastefnu fyrirtækisins og setja markmið varðandi launajafnrétti kynja.
flokka og skila gögnum til úttektaraðila þegar kemur að jafnlaunavottun.
Justly Pay
Justly Pay - einföld leið að jafnlaunavottun
Justly Pay frá Origo er hugbúnaður sem hjálpar þér með skjalfestingu á jafnlaunakerfi til jafnlaunavottunar.
Hugbúnaður þróaður af sérfræðingum CCQ sem búa yfir margra ára reynslu af þróun og rekstri gæðastjórnunarkerfa, sem eru undirstaða þess að fá og viðhalda vottun.