Taktu upplýstari ákvarðanir með gögnum og gervigreind.
Nýttu gögn og gervigreind til að taka betri ákvarðanir, einfalda rekstur og skapa ný tækifæri til vaxtar. Við hjálpum þér að greina gögnin betur og byggja upp öruggar gervigreindarlausnir sérsniðnar að þörfum hvers fyrirtækis eða stofnunar.

Sérþekking sem leiðandi fyrirtæki treysta á.










Gervigreindarráðgjöf
Vertu klár í Copilot á 4 vikum
Heildstæð ráðgjöf sem hjálpar fyrirtækjum að hefja vegferðina með Microsoft Copilot studios. Við greinum tækifærin, metum tæknilega stöðu og innleiðum fyrstu lausnirnar með öryggi og rekstrarhæfni að leiðarljósi.

Vegferðin að Copilot Studio
1. Copilot Studio pilot
Við þróum fyrstu Copilot Studio lausnina til að sannreyna hugmyndina og skapa skjótan ávinning.
2. Þróun í framleiðslu
Lausnin er þróuð áfram, samþætt við núverandi kerfi og undirbúin fyrir örugga notkun í daglegum rekstri.
3. Útvíkkun
Reynslan úr fyrstu innleiðingu er nýtt til að leysa fleiri verkefni og innleiða fleiri Copilot Studio lausnir þar sem þær skila mestum ávinningi.
4. Sérsniðnar lausnir
Þegar skýr mynd er komin af þörfum og tækifærum er hægt að þróa sérsniðnar lausnir sem skapa enn meira virði og samkeppnisforskot.
Gervigreindarlausnir
Við smíðum bæði einfaldar og flóknar gervigreindarlausnir.
Okkar sérfræðingar hafa breiða þekkingu og reynslu í smíði gervigreindarlausna, allt frá Copilot Studio til sérsmíðaðra lausna, spunagreind til spálíkana.
Heyrðu í okkur og við finnum réttu nálgunina fyrir þig.

Hvað er gervigreind?
Hugvekja
Kveiktu áhuga á hagnýtingu gervigreindar.
Við sýnum á einfaldan og hagnýtan hátt hvernig gögn og gervigreind geta skapað virði í daglegum rekstri. Markmiðið er að auka skilning, efla þátttöku og hjálpa starfsfólki að koma auga á ný tækifæri.
Binni Borgar flytjur erindi

Vegvísir
Mótaðu skýra stefnu fyrir gögn og gervigreind.
Við vinnum með þér að því að greina tækifæri, forgangsraða verkefnum og byggja raunhæfa framkvæmdaáætlun sem skilar mælanlegum árangri.
Byggðu traustan grunn fyrir betri ákvarðanatöku.
Lausnir sem byggja upp gagnadrifinn rekstur
Gögn eru grunnurinn að betri ákvörðunum. Við hjálpum fyrirtækjum að byggja upp nútímalegt gagnaumhverfi þar sem gögn eru sameinuð, unnin og gerð aðgengileg til greiningar, sjálfvirknivæðingar og gervigreindar.
Verkefni
Gagnadrifin ákvörðunartaka hjá Bláa lóninu
Bláa Lónið umbreytir gagnadrifinni ákvarðanatöku
Bláa Lónið vann að umfangsmikilli gagnauppbyggingu sem tengdi saman lykilkerfi fyrirtækisins og færði stjórnendum rauntímainnsýn í reksturinn. Lausnin styður hraðari ákvarðanatöku, öflugri tekjustýringu og betri nýtingu á þjónustu og aðstöðu.
Gögnin þín geta skilað meira.
Ræddu við sérfræðing í gögnum og gervigreind
Hvort sem markmiðið er betri yfirsýn, skilvirkari rekstur eða innleiðing gervigreindar, þá hjálpum við þér að byggja lausn sem skapar raunverulegt virði.