Hjúkrunarfræðingur bólusetur fyrir Covid 19

16/04/2021

Blogg

Hvernig bestaði Ísland bólusetningarferlið?

Heilbrigðislausnir Origo hafa þróað kerfi sem heldur utan um bólusetningar gegn Covid-19 og stýrir einnig flæði einstaklinga á bólusetningarstað.

Gagnsætt og skilvirkt ferli

Kerfið sem Origo hefur þróað heldur utan um alla þá einstaklinga sem þurfa á bólusetningu að halda og í kerfinu er hægt að skrá í þá forgangshópa sem hafa verið skilgreindir. Vegna þess að bóluefnin eru mismunandi hefur kerfið verið forritað á þann hátt að einstaklingar eru kallaðir inn á mismunandi vegu eftir hverju bóluefni.

Skráningin er gríðarlega einföld og byggir á því að einstaklingur fær sent strikamerki með SMS skilaboðum. Þegar einstaklingur er bólusettur er strikamerkið skannað og fara þá sjálfkrafa upplýsingar um bólusetninguna inn í öll kerfi heilbrigðiskerfisins. Upplýsingarnar um bólusetninguna eru þá komnar inn í bólusetningargrunn sóttvarnalæknis, sjúkraskrá einstaklings og inn í Heilsuveru, sameiginlega heilbrigðisgátt Íslendinga. Þar birtist síðan bólusetningarvottorð einstaklings, en Ísland var fyrst þjóða til að gefa út rafrænt bólusetningarvottorð.

Gott flæði á bólusetningarstað

Bólusetningarkerfið passar að flæði og skipulag á bólusetningarstað sé gott. En mikilvægt er að álagið sé jafnt og ekki of margir mæti á sama tíma. Ísland stendur mjög framarlega hvað varðar skipulag bólusetninga og utanumhald.

Origo leiðandi í þróun hugbúnaðar

Ísland er komið mjög langt í stafrænni þróun og sjálfvirknivæðingu heilbrigðiskerfisins. Íslenskt heilbrigðiskerfi er einstaklega öruggt og gagnsætt vegna mikilla samtenginga milli kerfa. Síðustu 30 ár hefur Origo verið leiðandi í þróun á þeim rafrænu innviðum og kerfum sem eru til staðar í íslensku heilbirgðiskerfi. Þessir rafrænu innviðir og kerfi gera það að verkum að hægt var að þróa bólusetningarkerfi hratt svo hægt væri að bólusetja Íslendinga á öruggan hátt.

Deildu gleðinni