Hjúkrunarfræðingur situr við tölvu

17/12/2020

Blogg

Næsta stóra verkefni: Bólusetningar gegn Covid-19

Heilbrigðislausnir Origo vinna alla daga að mikilvægum verkefnum í samvinnu við íslenska heilbrigðiskerfið. Síðan Covid-19 faraldurinn skall á hefur Origo unnið náið með Landlæknisembættinu að sýnatökum bæði á landamærum Íslands og á heilbirgðisstofnunum. Landamærakerfið sýndi styrkleika sinn þegar það var innleitt á Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins við almennar sýnatökur. Áður en kerfið var innleitt var Heilsugæslan að taka um 200-400 Covid-19 sýni á dag en með innleiðingu landamærakerfisins náðist að taka allt að 4000 sýni á dag.

Næsta stóra verkefni íslenska heilbrigðiskerfisins

Senn líður að næsta stóra verkefni íslenska heilbrigðiskerfisins, að bólusetja gegn Covid-19. Undanfarnar vikur hafa heilbrigðislausnir Origo unnið að tölvukerfi sem sér um allt utanumhald fyrir Covid-19 bólusetningar á Íslandi. Kerfið er þróað í nánu samstarfi við Landlæknisembættið, Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins og aðrar heilbrigðisstofnanir. Kerfið byggir á hugmynd sem þróuð var fyrir Covid-19 sýnatökur á landamærunum og er notað í dag við nær allar Covid-19 sýnatökur á Íslandi.

Öflugt kerfi sem heldur utan um forgangshópa og boðar sjálfvirkt í bólusetningu í gegnum SMS

Origo tókst að þróa kerfi sem myndaði öflugan grunn að lausnum við bólusetningar. Huga þurfti að mörgum þáttum við þróun kerfisins en það heldur m.a. utan um einstaklinga sem eru í forgangshópi. Einnig þurfti að þróa kerfið á þann hátt að mögulegt væri að boða einstaklinga með sjálfvirkum hætti í bólusetningar jafnóðum og bóluefni berst til landsins. Það verður gert á þann hátt að einstaklingur fær sent strikamerki með skilaboðum í Heilsuveru og SMS um boðun í bólusetningu. Þá er mögulegt að boða einstaklinga á mismunandi bólusetningastöðvar út frá því á hvaða heilsugæslu þeir eru skráðir. Einnig mun kerfið boða einstaklinga í seinni bólusetningu á sambærilegan hátt í gegnum Heilsuveru. Þannig heldur Heilsuvera áfram að vera miðlægur samskiptagrunnur fyrir heilbrigðisþjónustu einstaklinga.

Kerfið mun sjá um að skrá allar bólusetningar í bólusetningargrunn sóttvarnalæknis svo hægt verði að halda miðlægt utan um alla þá sem fá bólusetningu.

Nú þegar hefur verið hafist handa við að skrá inn í kerfið þá forgangshópa sem hafa verið skilgreindir af sóttvarnalækni og heilbrigðisráðherra en sú vinna hófst þann 15. desember síðastliðin.

Origo vinnur einnig í samstarfi við Landlæknisembættið að því að útbúa lista yfir alla þá einstaklinga sem eru í áhættuhópi fyrir Covid-19 út frá þeim sjúkdómsgreiningum sem skráðar eru í sjúkraskrárkerfi Sögu.

Ísland í einstakri stöðu

Ísland er í einstakri stöðu vegna þeirra rafrænu innviða sem þróaðir hafa verið fyrir heilbrigðiskerfið á undanförnum árum, samanber sjúkraskrárkerfið Sögu, Heilsuveru og heilbrigðisnetið Heklu sem heilbrigðislausnir Origo halda utan um og þróa. Þessir innviðir munu nú gera okkur kleift að bólusetja gegn Covid-19 með markvissum og skipulögðum hætti.

Deildu gleðinni