29/04/2025
Origo gefur út sjálfbærniskýrslu 2024
Sjálfbærniskýrsla Origo fyrir árið 2024 er nú aðgengileg á vefnum. Við hvetjum lesendur til þess að skoða skýrsluna til þess að fá dýpri skilning á árangri og framtíðarstefnu okkar í sjálfbærnismálum.

Origo hefur nú gefið út sjálfbærnisskýrslu ársins 2024. Þar er farið yfir lykilverkefni og árangur ársins með sérstakri áherslu á þau meginatriði sem drífa okkur áfram: nýsköpun, öryggi, jafnrétti og heilsu.

Á árinu náðum við mikilvægum áföngum:
Nýsköpun var í brennidepli, meðal annars með þróun sjálfvirkrar lausnar í samstarfi við KPMG sem greinir kolefnisspor fyrirtækja, auk áframhaldandi stuðnings við nýsköpunarsamfélagið í gegnum Klak og Iceland Innovation Week.
Öryggi var eflt enn frekar með árlegri öryggisþjálfun starfsfólks, stuðningi við Gagnaglímuna og viðhaldi ISO 27001 vottunar á stjórnunarkerfi upplýsingaöryggis.
Jafnrétti er hornsteinn í stefnu okkar. Við héldum áfram að efla áhuga og nýliðun kvenna í tækni, tryggðum áframhaldandi jafnlaunavottun og fylgdum eftir markmiðum um kynjahlutföll í ráðningum.
Heilsa og vellíðan starfsfólks var í forgrunni með heilsu- og lífsstílsverkefnum, öflugu félagslífi og forvarnavinnu. Við erum sérstaklega stolt af því að starfsánægja hjá Origo mældist afar há – vottun á heilbrigðu og öflugu vinnuumhverfi sem leggur grunn að áframhaldandi árangri í sjálfbærni.
Nýtt samstarf við Slysavarnarfélagið Landsbjög
Origo gekk í hóp aðalstyrktaraðila Landsbjargar á árinu undir yfirskriftinni „Finnum leiðina: Samstarf okkar skapar öryggi“, með sérstakri áherslu á stuðning við Landsbjörgu í upplýsingatækni og netöryggismálum. Samstarfið byggir á sameiginlegum áherslum beggja aðila á öryggi, sveigjanleika og áreiðanleika, hvort heldur sem er við lausn fjölbreyttra verkefna eða í rekstri eigin innviða. Hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg er rétt þjálfun, forvarnir og snör viðbrögð lykilatriði, ekki síður í stafrænum heimi þar sem ný tækni nýtist sífellt meira í björgunaraðgerðum – og þar kemur þekking Origo sterkt inn í samstarfið.

Fjöldi viðurkenninga veitir innblástur og hvatningu
Origo hlaut viðurkenningu Sjálfbærniássins á árinu og mældist hæst af upplýsingatæknifyrirtækjum.
Moodup útnefndi Origo sem vinnustað í fremstu röð.
Einnig var Origo á ný í flokki fyrirmyndarfyrirtækja VR.
Þetta er aðeins brot af þeim verkefnum sem unnust á árinu.
Frekari upplýsingar má finna í sjálfbærnisskýrslunni og ESG uppgjörinu okkar.
Deila frétt